Umfjöllun um 112 ára konu hætt með hraði
Kirsten og eiginmaður hennar Laurits Wilhelm Schwalbe sem lést árið 1981. Hún kveðst hafa gengið í danska nasistaflokkinn DNSAP fyrir beiðni hans, en TV Midtvest hefur nú hætt allri umfjöllun um þessa elstu núlifandi manneskju Danmerkur vegna flokksaðildar hennar og stöðu flokksdeildarstjóra hjá flokknum. Ljósmynd/Úr einkasafni
Danska sjónvarpsstöðin TV Midtvest hefur ákveðið að hætta umfjöllun sinni um Kirsten Schwalbe, elstu núlifandi manneskju Danmerkur, sem um þessar mundir er 112 ára gömul, fædd 10. mars 1914, lifði báðar heimsstyrjaldirnar og lifir enn.
Hefur miðillinn þegar fjallað um líf hennar í sjónvarpsinnslögum og greinum á vef sínum, en samkvæmt því sem annar danskur fjölmiðill, Radio IIII, greinir frá leggur TV Midtvest nú alla frekari umfjöllun á hilluna í kjölfar þess er þriðji danski miðillinn, Frihedsbrevet, greindi frá því að Schwalbe hefði ekki aðeins verið félagi í danska nasistaflokknum DNSAP í Holstebro frá ágúst 1943 til júlí 1944, heldur einnig deildarhópstjóri flokksins þar á svæðinu.
„TV Midtvest hefur rætt við fjölskyldu Kirsten Schwalbe sem hefur gert það ljóst að fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga hafi tekið mikið á hana og hún þurfi frið heilsu sinnar vegna. Sem blaðamenn berum við ábyrgð á að taka tillit til varnarleysis fólks,“ segir í erindi Marc Kiligren Akselsen, aðalritstjóra TV Midtvest, til Radio IIII.
Lokaþátturinn felldur niður
Bætir hann því við að frekari umfjöllun um elstu núlifandi manneskju landsins falli því niður sem táknar að lokaþáttur raðar TV Midtvest um Schwalbe, Villt ár Kirsten, Kirstens vilde år, verður aldrei unninn hjá sjónvarpsstöðinni.
Schwalbe hefur raunar áður staðfest að hún hafi verið félagi í flokknum, en það hafi eingöngu verið vegna eiginmanns hennar sem hvatt hafi hana til að skrá sig á sínum tíma.
Fjölskylda Schwalbe greinir Frihedsbrevet frá því að gamla konan sé „djúpt snortin og miður sín vegna nýju fjölmiðlaumfjöllunarinnar“ og ekki fær um að tjá sig um upplýsingar miðilsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗