Hjartnæm kveðja Arons Einars til systur sinnar
Aron Einar Gunnarsson skrifaði hjartnæma færslu á Instagram eftir að hafa leikið sinn síðasta landsleik fyrir íslenska landsliðið í fótbolta. Þar minntist hann systur sinnar, Tinnu Bjargar Malmquist Gunnarsdóttur, sem lést árið 2023, langt fyrir aldur fram.
Aron Einar kom inn á sem varamaður í 3:0-sigri Íslands á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í gærkvöldi. Þar með lék hann sinn 113. og síðasta landsleik og jafnaði um leið landsleikjamet Birkis Bjarnasonar.
Í færslunni beindi Aron Einar orðum sínum til systur sinnar og þakkaði henni fyrir styrkinn sem hún veitti honum á þessum tímamótum.
„Ég veit að þú varst með mér þarna í gær að veita mér styrk í að klára mitt verkefni, elsku Tinna mín! Elska þig og sakna þín á hverjum degi. Hún vildi að ég hefði hætt fyrir fjórum árum því hún sá hversu mikið ég var að þjást líkamlega. En þegar þú fórst frá okkur gafstu mér styrk til að halda áfram,“ skrifaði Aron Einar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗