Metakvöld Thelmu kom Önnu ekki á óvart

Anna Ingunn ræðir við mbl.is í kvöld.

Anna Ingunn Svansdóttir var stolt af íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta eftir 129:41-sigur á Aserbaídsjan í forkeppni undankeppni EM í Ólafssal í kvöld. Hún skoraði 13 stig og var næststigahæst í íslenska liðinu.

„Ég hafði fulla trú á mínu liði en átti kannski ekki von á svona stórum sigri. Bara mjög vel gert hjá okkar liði,“ sagði Anna Ingunn í samtali við mbl.is.

Hún hafði búist við meiri mótspyrnu frá gestunum en var ánægð með hvernig íslenska liðið nálgaðist verkefnið.

„Við bara mættum fulltilbúnar að spila allan tímann.“

Ísland vann alla þrjá leiki sína í landsleikjaglugganum og sagði Anna liðið hafa gert vel bæði í sókn og vörn. Hún var ekki síður ánægð með framlag ungu leikmannanna sem eru að láta til sín taka.

„Við erum að búa til ótrúlega flottar ungar stelpur og þær eru að blómstra. Ógeðslega gaman að vera partur af því.“

Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 41 stig og setti bæði stiga- og þriggja stiga met kvennalandsliðsins. Sú frammistaða kom Önnu, liðsfélaga hennar hjá Keflavík, ekki á óvart.

„Nei, alls ekki. Hún er ógeðslega góð að skjóta og bara geggjað að fá að vera með henni í Keflavík líka. Hún er frábær.“

Anna var einnig ánægð með eigin frammistöðu en horfir nú til seinni þriggja leikja riðlakeppninnar.

„Bara taka næstu þrjá leiki og halda áfram á þessari braut.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅