MR-ingar deila enn á rektor
Hinn fornfrægi Gamli skóli, aðalbygging Menntaskólans í Reykjavík sem ríkishúsameistari Dana teiknaði fyrir miðja 19. öld. Nemendur eru ekki ánægðir með breytingar síðasta vetur sem mikið voru að þeirra sögn keyrðar í gegn án lögbundins samráðs. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
„Að tala um að nemendur skorti málfræðikunnáttu þegar þeir koma í MR og minnka um leið latínunám er mótsagnakennt. Álíka og að sleppa því að kenna algebru af því að menn kunni ekki margföldunartöfluna,“ segir Ingibjörg Hrafnsdóttir, nemandi við Menntaskólann í Reykjavík og auk þess meðstofnandi og formaður fornmálafélagsins Hermesar sem starfrækt er þar við skólann.
Ritstjórn mbl.is hefur undir höndum bókun frá áheyrnarfulltrúa nemenda á skólanefndarfundi á föstudaginn, 13. nóvember, þar sem stytting náms til stúdentsprófs fyrir áratug er gagnrýnd og undirbúningur nýstúdenta til háskólanáms skertur verulega auk möguleika þeirra á að komast inn í erlenda háskóla.
Ingibjörg er þessi áheyrnarfulltrúi.
Á síðasta skólaári hafi svo enn syrt í álinn hvað MR sérstaklega snerti og rektor skólans, að eigin frumkvæði, gengið gegn vilja hvorra tveggja, nemenda og kennara, með breytingum á skólanámskrá og „gengisfellingu á ýmsum sviðum“. Segir svo:
Námskröfur í brautalýsingum voru skertar á öllum brautum. Latínunám við skólann var t.d. skert úr þremur árum í tvö. Það nægir nú ekki til undirbúnings háskólanáms í fornfræðum og húmanískum greinum hérlendis sem erlendis. Um leið var t.d. tekið upp sem almenn skylda sjálfshjálparnámskeiðið „lífsleikni“ sem er óþarfi. Með þessum breytingum er stúdentspróf MR jafnað niður til samræmis við áfangaskóla sem eru dýrari og óskilvirkari í rekstri en MR, og með kerfislæga hvatningu til skerðingar námskrafna. Er það óvinafögnuður þeim sem hafa litið velgengni og kosti MR fram yfir áfangaskóla hornauga. Rektor hafði andmæli kennara og nemenda að engu. Nemendur andmæltu breytingunum formlega við ráðuneytið í minnisblaði 5. maí 2026 og báðu um að þeim yrði synjað staðfestingar. Nú hafa nemendur komið auga á hugsanlega misbresti við breytingaferlið.
Ingibjörg Hrafnsdóttir, áheyrnarfulltrúi nemenda og formaður fornmálafélagsins Hermesar, ræðir við mbl.is og fer yfir nýjustu vendingar í skólanámskrármálinu sem mikið var til umræðu á útmánuðum ársins. Ljósmynd/Aðsend
Þrjú ákvæði framhaldsskólalaga
Er svo í bókuninni vísað til þriggja greina laga um framhaldsskóla – þeirrar 5., sem kveður á um staðfestingu skólanefndar á skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar, þeirrar 9., sem kveður á um skólafund er veita skuli umsögn um nýja skólanámskrá, og að lokum 22. greinar sem mælir fyrir um að nemendum skuli veitt tækifæri til að taka þátt í gerð skólanámskrár.
Ingibjörg heldur áfram og segir Sólveigu Hannesdóttur rektor hafa tekið ákvarðanir sínar einhliða án þess að kennarar eða nemendur hefðu þar fengið að vera með í ráðum.
„Þeir hafi ekki fengið að taka þátt í neinni almennilegri umræðu um þetta mál eða fengið nokkrar upplýsingar um það þegar þessar ákvarðanir voru teknar. Nemendur eru óánægðir með þetta, þegar maður velur MR er maður að velja það krefjandi nám sem skólinn er þekktur fyrir,“ segir hún og heldur áfram.
Það hafi komið verulega á óvart þegar nemendur fréttu af breytingum skólanámskrárinnar frá kennurum sínum í febrúar. „Nemendur voru ekki látnir vita að þetta stæði til og ekkert hlustað á þegar þeir mótmæltu með undirskriftarlistum og skrifuðu greinar í blöðin,“ segir formaður fornmálafélagsins.
Heimsóknin í ráðuneytið
Þegar rektor tjái sig um málið hljómi það eins og full samstaða hafi ríkt um breytingarnar og kennarar verið hafðir með í ráðum. „En í rauninni hefur ekkert verið hlustað á þá,“ segir Ingibjörg.
Hún hafi fengið að skoða fundargerðir þar sem ekkert hafi komið fram um að málið hefði verið lagt fyrir skólanefnd, þvert á móti hafi það einfaldlega litið út eins og einhliða ákvörðun.
Segir Ingibjörg frá því að hópur nemenda hafi heimsótt menntamálaráðuneytið og afhent þar bréf til ráðherra, sem hafði ekki tækifæri til að ræða við nemendur í heimsókn þeirra.
„Á þessum fundi fengum við það á tilfinninguna að við gætum ekki gert mikið, enda hvernig hefði ráðuneytið átt að vita af því að rektor hefði ekki farið að lögum?“ spyr hún enn fremur.
Nú hafi fundargerðir skólanefndar, sem fulltrúi nemenda óskaði eftir, verið afhentar, segir Ingibjörg það raunar hafa verið gert í dag, þriðjudag, en ekki fundargerð skólafundar.
Breytingar keyrðar í gegn
„Slík fundargerð, ef hún er á annað borð til, virðist ekki hafa verið lögð fyrir skólanefndarfund í samræmi við lög miðað við fundargerðir skólanefndar. Breytingar rektors á skólanámskránni voru keyrðar í gegn í miklu óðagoti þegar óánægja nemenda kom fram á undirskriftalistum í vor. Um þá lista var ekki rætt á skólanefndarfundum,“ segir viðmælandinn.
Ingibjörg segir nemendur, sem hafi viljað leggja eitthvað á sig í námi og uppskera til samræmis við það, hafa átt ákveðinn griðastað í MR „og það er dálítið aumt ef nú á að fara að breyta því og gera MR eins og alla aðra skóla. Fjölbreytni er þörf í valmöguleikum fyrir nemendur, áfangaskólarnir hafa ekki boðið upp á þessa fjölbreytni, latínan er horfin þar,“ segir Ingibjörg.
Hún segir nám vera innihald, en ekki umbúðir, og ótækt sé að hafa grunnskólanám í menntaskólum. „Nemendur koma oft málfræðilausir inn í menntaskólana, en latínan hefur bjargað mörgum nemendum um þessa málfræðikunnáttu.
„Nemendur hafa enn ekki skýra hugmynd um hvað vakir fyrir rektor með þessum breytingum, annað en að ráða. Rektor hefur þó beinlínis sagt að hún sé ekki tungumálamanneskja,“ segir Ingibjörg Hrafnsdóttir, nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, áheyrnarfulltrúi nemenda á skólanefndarfundum og formaður Hermesar, að lokum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
