Missa vottun eftir tólf dauðsföll
Mexíkó og Bólivía hafa ásamt Bandaríkjunum fallið af lista yfir þau lönd þar sem mislingum hefur verið útrýmt, en Kanada hlaut sömu örlög í fyrra. AFP
Bandaríkin eru ekki lengur skilgreind sem land sem hefur útrýmt mislingum, þar sem minnkandi hlutfall þeirra sem bólusettir eru gegn þessum banvæna og bráðsmitandi sjúkdómi hefur leitt til gríðarlegrar fjölgunar tilfella um allt land.
Þessu greinir John Barbosa, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Ameríku (PAHO), sem er undirstofnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), frá á blaðamannafundi.
Mexíkó og Bólivía hafa sömuleiðis fallið af lista yfir þau lönd þar sem mislingum hefur verið útrýmt, en Kanada hlaut sömu örlög í fyrra.
Dauðsföllin flest meðal ungra barna
Í Bandaríkjunum, sem urðu árið 2000 fyrsta landið vestanhafs til þess að vera lýst laust við mislinga, hefur skæðasti mislingafaraldur í meira en þrjá áratugi geisað undanfarið ár. Yfir 5.400 tilfelli hafa verið skráð í landinu á þessu ári, og hundruð manns verið lögð inn á sjúkrahús.
Langflest tilfellin hafa komið upp hjá óbólusettu fólki og hafa að minnsta kosti tólf dauðsföll verið rakin til sjúkdómsins frá árinu 2025, aðallega meðal ungra barna.
Þótt hlutfall bólusettra barna hafi farið lækkandi allt frá því að Covid-19 faraldurinn geisaði hafa heilbrigðissérfræðingar margir hverjir kennt Donald Trump Bandaríkjaforseta og heilbrigðisráðherra hans, Robert F. Kennedy yngri, um að ala á vantrausti í garð bólusetninga með því að vekja ítrekað athygli á tilhæfulausum áhyggjum af öryggi þeirra.
Haldið í skefjum í meira en kynslóð
„Í meira en kynslóð héldu Bandaríkin mislingum í skefjum með því að bólusetja börn, fylgjast með sjúkdómnum og bregðast hratt við þegar tilfelli komu upp,“ segir Andrew Racine, forseti Bandarísku barnalæknaakademíunnar.
„Endurkoma landlægra mislinga í Bandaríkjunum er misbrestur sem hefði mátt koma í veg fyrir og felst í því að vernda ekki börn,“ bætir hann við.
Kanada hefur náð árangri í baráttunni við sinn faraldur og hafa engin ný tilfelli komið upp tvo mánuði í röð að sögn Barbosa, framkvæmdastjóra PAHO, og bendir hann á að þróunin yrði að halda áfram í heilt ár til að landið gæti talist laust við mislinga.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗