Enginn fengið símtöl frá Guðrúnu, hvað þá Þorgerður
Aðspurð um það hvort hún upplifi það sem svik af hálfu Ingvars að hann hafi gengist til liðs við stjórnarandstöðuna segir Sandra að flokkurinn hafi gengið inn í síðustu þingkosningar sem eitt lið, og þar sem ekkert samtal við Ingvar hafi átt sér stað myndi hún telja það. Samsett mynd mbl.is/Karítas/Eyþór
Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, segir Guðrúnu Hafsteinsdóttur slá ryki í augu fólks með ummælum um að hún hafi átt samtöl við fleiri stjórnarþingmenn sem féllu í kjölfar úrsagnar Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar.
Enginn í þingflokki Viðreisnar hafi fengið símtöl þess efnis frá Guðrúnu, og hvað þá Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins.
Í samtali við mbl.is segir Sandra það hafa verið áfall að missa Ingvar úr flokknum
„Ég meina, það er alltaf áfall að missa félaga, það er bara þannig. Það eru bara vonbrigði, við erum bara svekkt og sár og allt það, það eru allar tilfinningar.“
Svik af hálfu Ingvars
Aðspurð um það hvort hún upplifi það sem svik af hálfu Ingvars að hann hafi gengist til liðs við stjórnarandstöðuna segir Sandra að flokkurinn hafi gengið inn í síðustu þingkosningar sem eitt lið, og þar sem ekkert samtal við Ingvar hafi átt sér stað myndi hún telja það.
„Við förum auðvitað inn í þessar kosningar sem eitt lið, og það er kannski meira það hvernig að þessu var staðið. Ég hef ekkert átt neitt samtal við hann, og veit ekki til þess að nokkur af okkar þingmönnum hafi einhvern veginn átt samtal við hann,“ segir hún.
„Þannig að já, ég myndi telja það.“
Þurfi að gera málamiðlanir en standi enn við stóru málin
Þegar Ingvar tilkynnti að hann hygðist segja skilið við þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn gagnrýndi hann sérstaklega skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og sagði þær ganga gegn loforðum Viðreisnar fyrir síðustu kosningar.
Þá teldi hann að ekki hafi verið staðið við fyrirheit gagnvart kjördæmi sínu, Norðausturkjördæmi, og að samstarf stjórnarflokkanna hafi snúist um of um hrossakaup þar sem flokkar samþykki mál sem gangi gegn eigin sannfæringu til að fá sínu framgengt annars staðar.
„Þetta er auðvitað krefjandi verkefni, að vera í ríkisstjórnarmeirihluta. Ég er landsbyggðarþingmaður, alveg eins og Ingvar, þú veist, en maður þarf líka að geta staðið í 3.000 fetum og horft á heildarmyndina,“ segir Sandra.
„Það eru bara málamiðlanir sem þarf að gera, en stóru málefnin sem við lögðum á oddinn í kosningabaráttunni, við erum svo sannarlega að standa við þau.“
Íbúar eitt, fyrirtækjarekendur annað
Margar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hafa jafnframt verið gagnrýndar vegna áhrifa sem þær munu hafa á Suðurkjördæmi, til að mynda fyrirhugaða breytingu á skattlagningu baðlóna, svo og innviðagjald sem í fyrstu mun eingöngu leggjast á ferðamannastaði í Bláskógabyggð.
Aðspurð um það hvort ósætti sé með þessar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar meðal þingmanna Suðurkjördæmis segir Sandra upplifanir íbúa Suðurkjördæmis eitt, og upplifanir fyrirtækjarekenda annað.
„Íbúar Suðurkjördæmis, það er eitt. Síðan ertu með fyrirtækjarekendur og baðlónaeigendur og þá sem eru í ferðaþjónustunni, og eðlilega er ekki sátt þar. Það sem við erum að gera líka er að einfalda skattkerfið, þannig að þetta er partur af því líka,“ segir hún.
Ríkisstjórnin hafi tekið við mjög flóknu verkefni sökum uppsafnaðs halla á ríkissjóði, og þrátt fyrir að það geti verið sársaukafullt sé markmiðið það að ná hallalausum fjárlögum og ná vöxtum niður.
„Það besta fyrir fyrirtækin er að ná vöxtum og verðbólgu niður, og það getur auðvitað verið sársaukafullt en endamarkmiðið er að ná hallalausum fjárlögum og ná vöxtum niður.“
Gefur lítið fyrir orð Guðrúnar
Í gær sagðist Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafa átt samtöl við fleiri þingmenn stjórnarmeirihlutans en Ingvar sem séu hugsi yfir stefnu ríkisstjórnarinnar, en kaus að tjá sig ekki ítarlegar um þau samtöl.
Sandra kveðst ekki leggja mikla þýðingu í þau orð Guðrúnar, en báðar eru þær Hvergerðingar í gegn.
„Ég veit ekki hvort ég ætti að vera móðguð yfir því að ég hafi ekki fengið símtal líka,“ segir Sandra og hlær við.
Enginn fengið símtöl, hvað þá Þorgerður
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tjáði sig um ummæli Guðrúnar í gær og sagði það óeðlilegt að Guðrún væri að „fabúlera um svona hluti í fjölmiðlum“. Sandra virðist slá á sömu strengi.
„En ég hlæ bara að þessu, auðvitað er bara verið að þyrla upp einhverju ryki, og ég meina, ríkisstjórnarflokkarnir standa allir styrkum fótum, við erum einhuga og samhent um þessa niðurstöðu sem við þurfum að ná, og það er enginn vafi á því,“ segir Sandra.
„Það er bara verið að slá ryki í augun á fólki með þessum ummælum. Enginn í þingflokki Viðreisnar hefur fengið símtal frá Guðrúnu Hafsteinsdóttir, og hvað þá Þorgerður.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗