Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu
Breskur karlmaður sem varð 86 ára gamalli konu að bana þegar hann ók á hana á rafkrossara hefur fengið fangelsisdóm sinn þyngdan um eitt ár og níu mánuði. Áfrýjunardómstóll í Bretlandi taldi fyrri refsingu mannsins of væga.
DV fjallaði um málið í maí, þegar Billy Stokoe, sem nú er tvítugur, var dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi fyrir að verða Gloriu Stephenson að bana í Sunderland á Englandi.
Kolólöglegur í umferðinni
Gloria var 86 ára og var úti að ganga með hund dóttur sinnar þegar Stokoe ók á hana á gangbraut í maí í fyrra. Hann var þá 18 ára, undir áhrifum kannabisefna og ók ólöglegum rafkrossara sem var í ófullnægjandi ástandi. Aðeins önnur bremsan virkaði og þar að auki hélt Stokoe á farsíma.
Myndskeið úr myndavél í bifreið sýndi hvernig hann ók á konuna án þess að hægja á sér eða reyna að sveigja frá henni. Hann yfirgaf síðan vettvang, faldi rafkrossarann hjá vini sínum og skipti um föt. Rúmri klukkustund síðar ók móðir hans honum á lögreglustöð þar sem hann gaf sig fram.
Fjölskyldan taldi dóminn móðgun
Fyrri dómurinn vakti mikla reiði meðal aðstandenda Gloriu, enda átti Stokoe að afplána helming refsingarinnar í fangelsi áður en honum yrði sleppt að uppfylltum skilyrðum.
Julie Francis, dóttir Gloriu, sagði dóminn móðgun við minningu móður sinnar og fjölskylduna alla.
Málinu var í kjölfarið vísað til áfrýjunardómstóls þar sem krafist var refsiþyngingar og féllst dómarinn á rök ákæruvaldsins.
Verjandi Stokoe lagði hins vegar áherslu á ungan aldur hans og vanþroska þegar slysið varð, auk þess sem hann hefði játað brot sitt og sýnt iðrun.
Dómurinn þyngdur í átta og hálft ár
Þrír dómarar við áfrýjunardómstólinn komust í dag að þeirri niðurstöðu að upphaflega refsingin hefði verið of væg. Einn dómari sagði að ekki væri hægt að réttlæta fyrri dóminn og lagði hann til verulega refsiþyngingu. Niðurstaðan var sú að dómurinn var þyngdur úr sex árum og níu mánuðum í átta ár og sex mánuði.
Dómarinn lagði jafnframt áherslu á að á bak við málið væri harmleikur sem hefði haft djúpstæð áhrif á líf allra þeirra sem elskuðu Gloriu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗