Mygla í nær öllum herbergjum eftir gríðarlegt vatnstjón

Framkvæmdir við turninn voru stöðvaðar í upphafi mánaðar, en viku síðar voru þau sex félög sem tengdust uppbyggingu hótelturnsins tekin til gjaldþrotaskipta samkvæmt Lögbirtingarblaðinu. Þar á meðal eru S26 Hotel ehf. og Rauðsvík ehf. mbl.is/Karítas

Ljóst er orðið að mygla hefur hreiðrað um sig í nærri öllum herbergjum Radisson Red-hótelturnsins við Skúlagötu, eða allt að 190 herbergjum af 214.

Þetta herma heimildarmenn Viðskiptablaðsins sem komið hafa að verkefninu, sem meta stöðuna svo að tjónið gæti hlaupið á 10 til 14 milljörðum króna þar sem fjarlægja gæti þurft herbergiseiningarnar. Turninn er þegar skuldsettur fyrir 20 milljarða króna.

Framkvæmdir við turninn voru stöðvaðar í upphafi mánaðar, en viku síðar voru þau sex félög sem tengdust uppbyggingu hótelturnsins tekin til gjaldþrotaskipta samkvæmt Lögbirtingarblaðinu. Þar á meðal eru S26 Hotel ehf. og Rauðsvík ehf.

Samkvæmt heimildum mbl.is urðu vatnsskemmdir á fjölda fullbúinna herbergjaeininga sem fluttar voru til landsins frá Póllandi í vor. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að þegar umfang skemmdanna hafi komið í ljós hafi bankinn ákveðið að hætta frekari fjárveitingum til verkefnisins.

Tryggja þurfi öryggi á byggingasvæðinu

Miklar skuldir hvíla á turninum fræga við Skúlagötu, en þar átti sautján hæða hótel Radisson Red að opna eftir talsverða þrautagöngu sem hófst árið 2018 og litaðist af hæðum og lægðum í ferðaþjónustu ásamt tímabundinni stöðvun framkvæmda í farsóttinni árin 2020-2021.

Arion banki er aðalkröfuhafi framkvæmdarinnar og mun að sögn Jóns Árna Ágústssonar, eins eigenda S26 Hotels ehf., hafa stöðvað fjárveitingar til verkefnisins skömmu áður en framkvæmdir voru stöðvaðar þann 2. nóvember og verktakar sendir heim. 

Eva Bryndís Helgadóttir er skipaður skiptastjóri í þrotabúum félaganna sex sem tengjast uppbyggingu hótelturnsins, og segir hún fyrst verkefnin meðal annars snúa að starfsfólki og leigusamningum. Þá þurfi að tryggja öryggi á byggingarsvæðinu, en markmiðið sé að finna aðila sem er reiðubúinn að ljúka við uppbyggingu turnsins sem fyrst.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅