Ótrúleg endurkoma Norðmanna á Parken

Erling Haaland á Parken.

Erling Haaland á Parken. AFP/Liselotte Sabroe

Erling Haaland reyndist hetjan þegar Noregur vann ótrúlegan endurkomusigur á Danmörku, 3:2, í lokaumferð fjórða riðilsins í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld. 

Haaland skoraði sigurmark Noregs á sjöttu mínútu uppbótartíma seinni hálfleiks og tryggði Norðmönnum annað sætið í leiðinni og sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar. 

Portúgal vinnur riðilinn með 15 stig en síðan koma Norðmenn og Danir með níu. Walesverjar enda síðan neðstir með þrjú. Norðmenn fara áfram þar sem þeir unnu báða leiki gegn Dönum. 

Rasmus Höjlund og Pierre-Emile Höjbjerg komu Dönum í 2:0 á fyrstu 14 mínútum leiksins. Haaland minnkaði síðan muninn fyrir Noreg á 37. mínútu og fyrirliðinn Martin Ödegaard jafnaði metin á 84. mínútu. 

Norðmenn fengu síðan víti í blálokin og skoruðu úr því. 

Portúgal vann þá Wales 3:2 á útivelli. Bruno Fernandes, Pedro Neto og Carlos Forbs skoruðu mörk Portúgals en David Brooks og Sorba Thomas skoruðu mörk Wales. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅