Grand Theft Auto þegar hlotið verðlaunatilnefningar

Grand Theft Auto auglýstur í Berlín. Tölvuleikurinn kemur út á aðfaranótt föstudags. AFP/Ralf Hirschberger

Grand Theft Auto VI, tölvuleikur Rockstar sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu, kemur ekki út fyrr en á miðnætti á aðfaranótt fimmtudags.

Þrátt fyrir það hefur GTA VI hlotið átta tilnefningar til árlegu tölvuleikjaverðlaunanna, „Leikur ársins“.

Skipuleggjendur hátíðarinnar tilkynntu þetta í dag. Um hátíðina er sagt að hún sé hliðstæða Óskarsverðlaunanna þegar kemur að tölvuleikjum. 

GTA VI hefur verið þrettán ár í vinnslu en síðasti leikur seríunnar, GTA V, kom þá út.

Stærsta afþreyingarafurð allra tíma 

Málsmetandi menn segja að útgáfa tölvuleikjarins sé stærsta útgáfa á afþreyingarvöru óháð formi fyrr og síðar. 

Tölvuleikjaserían er gríðarlega kostnaðarsöm en um leið arðsöm. Hún hefur rakað inn milljörðum dala fyrir framleiðandann bandaríska Take-Two Interactive. 

Fróðlegt verður að sjá hversu miklir peningar skila sér í kassann á fyrsta degi á föstudag.

Fréttin hefur verið uppfærð og tími útgáfu leiksins leiðréttur.

Markaðssetning tölvuleikjarins er eftirtektarverð. Þarna má sjá hann auglýstan á skiltum Times Square í New York. AFP/Charly Triballeau

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅