Frábært kvöld fyrir Heimi
Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, á enn séns á að komast upp í A-deild Þjóðadeildarinnar en liðið tryggði sér sæti í umspili um sæti þar í kvöld.
Liðið vann 3-0 sigur á Kósóvó á heimavelli í B-deildinni, kærkomið eftir þrjá leiki í röð án sigurs.
Það er því ljóst að Heimir og hans lærisveinar hoppa upp fyrir Kósóvó, í 2. sæti, og spila við lið sem endaði í 3. sæti í riðli sínum í A-deild um sæti þar í næstu keppni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗