Fyrrverandi lögreglumaður verður geldur - „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt“

Kristinn H. Guðnason

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 22:00

Williams framdi alvarleg kynferðisbrot gegn börnum á aldrinum 8 til 11. ára.

Bandarískur fyrrverandi lögreglumaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til geldingar. Dómurinn kemur ofan á þrefaldan lífstíðar fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn börnum á aldrinum 8 til 11 ára.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Kedreyon K. Williams, 31 árs gamall fyrrverandi lögreglumaður frá Louisiana, hlaut þrefaldan lífstíðar fangelsisdóm vegna kynferðisbrota gagnvart börnum á aldrinum 8 til 11 ára. Ofan á fangelsisvistina verður hann geldur.

Sjaldgæf refsing

Louisiana fylki útfærði nýlega refsilöggjöf sína og heimilaði dómurum að dæma kynferðisbrotamenn sem hefðu brotið gegn börnum undir 13 ára aldri til geldingar.

Geldingar eru ekki algengar í refsilöggjöfum ríkja. Sum ríki heimila efnavönun, svo sem Tékkland, Pakistan, Suður Kórea og Madagaskar. En í Louisiana verður geldingin gerð með skurðaðgerð. Það er eistun verða fjarlægð. Því hefur mál hins fyrrverandi lögreglumanns komist í sviðsljósið.

Viðbótarrefsing

„Hann framdi viðurstyggilega glæpi gegn börnum sem gátu ekki varið sig,“ segir Tony Clayton, saksóknari í málinu. Sagði hann að refsiaukinn væri meira en verðskuldaður.

„Hann er barnaníðingur og á skilið nákvæmlega það sem hann fær og meira til. Geldingin er viðbótarrefsing fyrir þessi hræðilegu brot. Ef maður misnotar barn kynferðislega, þá tökum við af honum æxlunarfærin,“ segir Clayton. „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt og finni huggun í þeirri vitneskju að hann muni aldrei framar geta ráðist á börn.“

Sagði móður sinni frá

Williams vann einnig sem slökkviliðsmaður. Hann framdi glæpi sína meðal annars á slökkvistöðvum sem hann vann á og á heimili sínu.

Hann var fundinn sekur um barnanauðgun, ósæmilega hegðun gagnvart börnum og vörslu barnakláms. Málið komst upp þegar eitt barnið sagði móður sinni frá ofbeldinu sem Williams hafði beitt. Þegar rannsókn hófst kom í ljós að málið var mun umfangsmeira og fjöldi fórnarlamba meiri. Meðal annars fundust myndbönd á síma hans af honum að fremja kynferðisbrot gegn börnum.

Versta sem dómarinn hefur séð

Við dómsuppkvaðninguna sagði Kevin Kimball dómari að brot Williams væru þau verstu sem hann hefði nokkurn tímann séð. Lífstíðardómur er lágmarsrefsing fyrir barnanauðgun í Louisiana fylki en Clayton saksóknari hafði krafist geldingar sem refsiauka einnig og Kimball féllst á það.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅