Sögulegur leikur Thelmu: Búin að gera þetta endalaust
Thelma Dís Ágústsdóttir átti sögulegt kvöld þegar íslenska kvennalandsliðið vann Aserbaídsjan, 129:41, í forkeppni undankeppni EM í körfubolta í Ólafssal í kvöld. Hún skoraði 41 stig og setti bæði stiga- og þriggja stiga met íslenska kvennalandsliðsins.
„Nei, ég get nú ekki sagt það,“ sagði Thelma Dís í samtali við mbl.is þegar hún var spurð hvort hún hefði getað ímyndað sér slíkar tölur þegar hún vaknaði í morgun.
„Við vissum að maður var að fara að spila mikið svæði og þristarnir eru oft opnir þá. En alls ekki að gera sér ráð fyrir einhverju svona.“
Thelma raðaði þriggja stiga körfunum niður og fann hvernig sjálfstraustið jókst eftir því sem leið á leikinn.
„Maður náttúrulega er búinn að gera þetta bara alltaf og endalaust,“ sagði hún um skotæfingarnar sem liggja að baki. „Svo þegar maður er búinn að setja nokkra í, þá einhvern veginn stækkar hringurinn og þetta verður auðveldara.“
Hún bjóst við að íslenska liðið gæti náð góðum leik en sigurinn varð stærri en hún hafði séð fyrir sér. Aserar voru án bandarísks leikstjórnanda síns og sagði Thelma muna mikið um fjarveru hennar.
„Við náðum einhvern veginn bara að keyra almennilega á þær, bæði í vörn og sókn, og þá var þetta nokkuð auðvelt.“
Ísland vann alla þrjá leiki sína í þessum landsleikjaglugga. Thelma var ánægð með framlag samherja sinna og telur framtíðina bjarta.
„Við erum með fullt af leikmönnum sem eiga bara gott erindi í þetta landslið og eru bara framtíð fyrir okkur. Gaman að spila með þeim og gaman að halda áfram að fylgjast með þeim í framtíðinni.“
Hún hafði hins vegar ekki ákveðið hvernig hún ætlaði að fagna metakvöldinu.
„Við erum með einhvern mat hérna uppi eftir þennan leik og svo bara veit ég ekki alveg. Maður er ekki kominn það langt.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗