Mjög mikilvægt fyrir Heimi Hallgrímsson

Heimir Hallgrímsson á hliðarlínunni í kvöld.

Heimir Hallgrímsson á hliðarlínunni í kvöld. AFP/Paul Faith

Írland vann mikilvægan sigur á Kósovó, 3:0, í lokaleik sínum í þriðja riðli B-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. 

Með sigrinum tryggðu lærisveinar Heimis Hallgrímssonar sér annað sætið í riðlinum og fara því í umspil um sæti í A-deildinni. Austurríki vann riðilinn með tólf stig, Írland hafnaði í öðru með átta, Kósovó í þriðja með sex og Ísrael neðst með fjögur. 

Kreshnik Hajrizi í liði Kósovó fékk rautt spjald á 26. mínútu og tveimur mínútum síðar kom Troy Parrott Írum yfir með marki úr vítaspyrnu. 

Parrott tvöfaldaði forskot Íra með öðru vítaspyrnumarki á 50. mínútu og Jack Moylan skoraði þriðja mark liðsins á 75. mínútu. 

Írar fagna.

Írar fagna. AFP/Paul Faith

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅