Vísar því á bug að hafa átt þátt í dauða barnsföður síns

Gypsy Rose Blanchard á rauða dreglinum árið 2024 í tilefni af sýningu heimildaþáttanna The Prison Confessions of Gypsy Rose Blanchard. AFP/Jamie McCarthy

Gypsy Rose Blanchard brast í grát í ástralska sjónvarpsþættinum 60 Minutes um helgina þegar hún rifjaði upp hvernig henni bárust fréttir af andláti Kens Urkers, fyrrverandi unnusta síns og barnsföður.

Blanchard segir þau hafa gert áætlanir um framtíðina og hún hafi treyst því að hann yrði sér við hlið. Hún hafnaði jafnframt ásökunum um aðild að dauða hans.

Urker fannst látinn á heimili sínu í Raceland í Louisiana 1. október, á 34 ára afmælisdegi sínum.

Blanchard sagðist í fyrstu hafa neitað að trúa því að Urker væri látinn. Hún hefði fallið í gólfið og öskrað þegar henni bárust fregnirnar.

„Ég hef þekkt Ken í næstum níu ár. Ég hef aldrei elskað neinn eins og hann,“ sagði hún.

Lést af völdum eitrunar

Daginn eftir að viðtalið var sýnt greindi embætti dánardómstjóra í Lafourche frá því að Urker hefði látist af völdum eitrunar eftir inntöku nokkurra efna.

Embættið komst að þeirri niðurstöðu að um slys hefði verið að ræða eftir að niðurstöður krufningar og eiturefnamælinga lágu fyrir, að því er People greinir frá.

Í viðtalinu vísaði Blanchard því alfarið á bug að hún hefði átt þátt í dauða Urkers. Lögreglan hafði áður greint frá því að ekkert benti til saknæms athæfis.

Gypsy Rose Blanchard og Ken Urker þegar þau áttu von á dóttur sinni Auroru, sem fæddist í desember 2024. Skjáskot/Instagram

Eignuðust dóttur í desember 2024

Blanchard og Urker trúlofuðu sig árið 2018 þegar hún afplánaði fangelsisdóm fyrir aðild sína að morðinu á móður sinni, Dee Dee Blanchard. Þau slitu síðar trúlofuninni en tóku aftur saman vorið 2024. Í desember sama ár eignuðust þau dótturina Auroru.

Að sögn Blanchard var Urker fluttur af sameiginlegu heimili þeirra áður en hann lést. Hún sagði illkvittin ummæli um hann og samband þeirra á netinu hafa tekið mjög á hann.

People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅