Líkir Rússlandi við Stjörnustríð

Díana Júríevna Burkot getur hugsanlega aldrei snúið til Rússlands aftur. Faðir hennar, sem þó er úkraínskur, atyrðir hana fyrir að hafa svikið fósturjörð sína. mbl.is/Anton Brink

„Á sínum tíma var sakamál stofnað á hendur okkur í Pussy Riot eftir að við sömdum lag gegn stríðinu og gerðum við það myndband,“ segir Díana Júríevna Burkot, liðsmaður andófspönksveitarinnar rússnesku, í samtali við mbl.is, en hún hefur nú verið búsett á Íslandi í fjögur ár eftir að hún þurfti að flýja Rússland þegar hún féll í ónáð hjá þarlendum stjórnvöldum fyrir að mótmæla innrásinni í Úkraínu.

Díana hefur um þessar mundir verið búsett á Íslandi í fjögur ár og nam við Listaháskóla Íslands, en á sunnudaginn flutti hún listrænan gjörning í Hörpu á vegum Íslandsdeildar Amnesty International í tengslum við 25 ára afmæli herferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi, en afmælishátíðin Sláum taktinn – listræn samstaða fór þá fram í Hörpuhorni að viðstaddri Agnèsi Callamard, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, sem var þar heiðursgestur.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅