Naumt tap FH-inga
FH mátti þola naumt tap fyrir portúgalska liðinu Maritimo, 39:36, í B-riðli Evrópudeildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.
FH hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum í riðlinum hingað til og situr í botnsætinu með ekkert stig. Hafnarfjarðarliðið er því úr leik.
FH lék mjög vel í fyrri hálfleik og var fjórum mörkum yfir að honum loknum, 22:18.
Portúgalarnir voru aftur á móti mun sterkari í seinni hálfleik, unnu hann með sjö mörkum og leikinn með þremur.
Símon Michael Guðjónsson var markahæstur í liði FH með tíu mörk en á eftir honum komu Jón Bjarni Ólafsson, Eiður Rafn Valsson og Brynjar Narfi Arndal með fimm hver.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗