Flugvél rússneska hersins hrapaði: Nítján létust
Erlent | AFP | 17.11.2026 | 21:24
Vélin sem fórst var af gerðinni Antonov An-12. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Wikipedia.
Flugvél rússneska hersins hrapaði í Rússlandi með þeim afleiðingum að allir nítján um borð létu lífið.
Þetta kemur fram í þarlendum miðlum. Flugvélin er sögð hafa hrapað til jarðar í Síberíu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu.
Um er að ræða An-12 flugvél sem notuð er til flutninga á fólki og farmi. Sagt er að þotan hafi brotlent á óbyggðu svæði.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗