Vill setja menntamál í forgang: „Við gerum ekkert ein“
Starfsfólki og stjórnendum í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum Reykjavíkur ásamt fulltrúum nemenda, foreldra, Kennarasambandsins og kjörnum fulltrúum í borgarstjórn var í gær boðið til fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni Skóla- og frístundastarf í fremstu röð.
Fundinum er ætlað að leggja grunn að sóknaráætlun í menntamálum í Reykjavík.
„Það er okkar metnaður að við komum skóla- og frístundastarfi í borginni í fremstu röð og höldum því í fremstu röð,“ segir Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar í borginni, í samtali við mbl.is.
„Við áttum okkur alveg á því að við gerum ekkert ein. Við þurfum að gera þetta á breiðum grunni og það þarf vítt og breitt samtal. Það var það sem gærdagurinn gekk út á, að kalla fólk saman.“
„Hver á að gera hvað og hvað kostar það?“
Fundurinn var sem fyrr segir vel sóttur. Til umræðu voru áskoranir, tækifæri og mögulegar aðgerðir í menntamálum. Setið var á tíu borðum og var hvert borð í lok fundarins beðið um að draga saman tvær aðgerðir sem brýnast væri að ráðast í.
„Það er ekkert mál að segja: Ég ætla að vera best í heimi. Þú þarft að segja hvernig og með hvaða aðferðum, hver á að gera hvað og hvað kostar það? Við vorum svolítið að aðgerðabinda,“ segir Björg.
„Ég var að skoða frumniðurstöður og þar kemur sterklega í ljós að mörg okkar hafa áhyggjur af því að við séum ekki að standa nægilega vel og með nógu marga tíma í íslenskukennslu og að þróa og ýta undir lestur, þannig að börn vilji lesa sér til gagns og gamans. Það þarf augljóslega meiri áherslu á það.
Margir kennarar töluðu um það að við værum að gera svo marga hluti yfir skóladaginn og vikuna. Athyglin dreifist út um allt. Það er hrekkjavökuvika, lýðræðisvika, skipulagsdagar og þetta og hitt. Það þarf að kjarna hvað við ætlum að gera, jafnvel gera færri hluti betur.“
Samtal við ríkið sé lykilþáttur
Spurð út í næstu skref segir Björg að ritari hafi verið á hverju borði og nú verði rýnt í það sem fundargestir telja að betur megi fara í menntamálum.
„Nú gerum við niðurstöðuskýrslu og það er grunnurinn að sóknaráætlun sem við erum að búa til í menntamálum í Reykjavík. Við erum að vanda okkur og við ætlum að vinna þetta ótrúlega vel og í góðu samstarfi og samtali við skólana okkar og starfsfólkið og alla,“ segir hún. Sóknaráætlunin verði kynnt á næsta ári.
„Svo held ég að við þurfum að víkka aðeins út linsuna. Það þarf að fara að tala um sveitarfélög og landið í heild,“ segir hún. Endurnýjun námsgagna hafi verið mikið til umræðu í gær, sem heyri undir ríkið.
„Það er bara lykilþátturinn í þessu að það þarf meira samtal við ríkið. Ég held að sveitarfélögin geti unnið saman og ríkið þarf augljóslega að stíga betur inn í þetta. Það er nú búið að lofa einhverri innspýtingu í námsgagnagerð en við þurfum sem þjóð að taka ákvörðun um að setja þetta í forgang og það er það sem við í Reykjavík ætlum að fara að þrýsta á.“
Hvert borð var beðið um að draga saman tvær aðgerðir í menntamálum sem brýnast væri að ráðast í. mbl.is/Eyþór
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





