Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi - Svona leysa þær málin

Leikkonan Sarah Paulson hefur tjáð sig um hvað gerist þegar hún og sambýliskona hennar frá árinu 2015, Holland Taylor, 83 ára, eru ósammála og eiga jafnvel í rifrildi. 

Paulson, sem er 51 árs, ræddi um ólík viðbrögð þeirra í þætti hlaðvarpsins Dear Chelsea með Chelsea Handler þann 12. nóvember. Þar spurði þáttastjórnandinn hvor þeirra tæki yfirleitt fyrsta skrefið til að sættast eftir rifrildi. 

„Ég,“ svaraði Paulson snöggt og viðurkenndi að skapið gæti oft hlaupið með hana í gönur. „Mér verður, og kemur það kannski ekki á óvart, mjög heitt í hamsi á augabragði en strax á eftir hugsa ég: úps,“ sagði hún. Að sögn Paulson er Taylor gjörólík henni hvað varðar nálgun á ágreining.

„Hún er svo raunsæ og yfirveguð,“ útskýrði Paulson og bætti við að maki hennar upplifi ekki sömu tilfinningalegu hæðir og lægðir. „Hún hefur mun betri stjórn á tilfinningum sínum.“ 

Paulson sagði að hennar eigin viðbrögð væru oft mun sveiflukenndari. Þótt henni finnist hún hafa orðið rólegri með aldrinum, viðurkenndi hún að tilfinningar hennar væru oft auðsjáanlegar. 

„Hvað sem gerist á milli okkar, eða hvað sem er að gerast, hvort sem það varðar samskiptin á heimilinu eða ástandið í heiminum, þá bregst ég oftast mun kröftugar við,“ sagði hún. „Holland bregst við á rólegri hátt. Mín viðbrögð eru meira eins og þau eigi sér stað utan líkamans.“ 

„Þetta er það sem Holland finnur helst að hjá mér,“ sagði hún. „Hún segir: ‚Þú ert með yfirburðavandamál.‘“ 

 

Kvartanir Taylor, eins og Paulson kom þeim á framfæri, snúast um að leikkonan líti á eigin skoðanir sem þær einu gildu. 

„Þú heldur að þín sýn á hlutina sé sú rétta, sú eina rétta, og talar svo við mig eins og ég sé hálfviti,“ rifjaði Paulson upp að Taylor hefði sagt við hana. „Og eitt er víst: ég er enginn hálfviti.“ 

Paulson mótmælti þessu ekki, heldur viðurkenndi að hún bregðist stundum við með því að halda því fast fram að hún hafi rétt fyrir sér. 

„En það er satt, ég geri þetta líka; ég hugsa: ‚Þú ert heimsk, ég þoli þetta ekki og ég ætla að vinna þessar rökræður..‘“ 

Paulson nýtti samtalið til að velta eigin viðhorfum fyrir sér, og byrjaði á því að nefna hvað hún dáist að í fari maka síns, sérstaklega þolinmæðina. 

„Holland er bara ekki þannig. Hún er einfaldlega ekki þannig. Og mig langar til að vera meira eins og hún,“ sagði Paulson. „En ég hugsa hlutina mjög í svörtu og hvítu. Ég hugsa ekki í gráum tónum. Og sannleikurinn er sá að heimurinn er í raun fullur af alls kyns gráum tónum.“ 

Hún lýsti sjálfri sér einnig sem mjög dómharðri manneskju og telur að það stafi af því hversu gagnrýnin hún er á sjálfa sig. „Ég er virkilega hörð við sjálfa mig og dómhörð,“ sagði hún. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅