Ísland - Aserbaídsjan, staðan er 124:41
Ísland er með fullt hús stiga í forkeppninni í undankeppni EM kvenna í körfubolta 2029 eftir risasigur á Aserbaídsjan, 129:41, í þriðja leik sínum í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld. Efsta lið riðilsins fer í eiginlegu undankeppnina.
Næstu leikir íslenska liðsins í forkeppninni eru í febrúar. Þá leikur Ísland við Írland á heimavelli, Sviss á útivelli og Aserbaídsjan á útivelli.
Íslenska liðið byrjaði betur og komst í 16:5 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Berglind Katla Hlynsdóttir kom inn með mikinn kraft og skoraði sex stig á nokkrum sekúndum eftir að hún kom inn á.
Helena Rafnsdóttir kom einnig með mikinn kraft í leik íslenska liðsins og hún endaði stigahæst á vellinum í fyrsta leikhluta með átta stig. Var staðan þá 30:11 og stefndi í stórsigur Íslands.
Íslenska liðið hélt áfram að bæta í forskotið og Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði tvo þrista í röð um miðjan annan leikhluta og kom Íslandi í 40:17. Var hún þá orðin stigahæst með níu stig.
Thelma endaði stigahæst í fyrri hálfleik með tólf stig og var staðan 52:22 þegar venjulegur leiktími var hálfnaður.
Keflvíkingurinn byrjaði seinni hálfleikinn eins og hún endaði þann fyrri og skoraði fjóra þrista í upphafi hans. Var staðan 73:22 þegar þriðji leikhluti var tæplega hálfnaður og Thelma þá með 24 stig.
Hún var komin með 30 stig þegar þriðji leikhluti var allur og var staðan eftir hann 99:32 og úrslitin löngu ráðin. Var þá aðeins spurning hve stór sigurinn yrði.
Thelma Dís endaði með 39 stig úr þrettán þriggja stiga körfum en bæði er met í einum leik með kvennalandsliðinu. Helena Rafnsdóttir kom næst með 15 og Anna Ingunn Svansdóttir gerði 13.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
