Aron Einar birtir hjartnæma kveðju til systur sinnar eftir síðasta leikinn: „Þegar þú fórst frá okkur gafstu mér styrk í að halda áfram“
Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 21:14
Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ
Aron Einar Gunnarsson skrifaði hjartnæm orð til systur sinnar, Tinnu Bjargar Malmquist heitinnar, eftir að hafa spilað síðasta landsleik sinn fyrir Íslands hönd í gær.
Aron lék sinn 113. A-landsleik á ótrúlegum ferli og jafnaði þar með landsleikjamet Birkis Bjarnasonar. Það var tár á hvarmi hjá honum og fleirum eftir leik, sem lauk með 3-0 sigri Íslands á Lúxemborg.
Aroni var hugsað til Tinnu, sem lést árið 2023, langt um aldur fram, eftir leik. „Ég veit að þú varst með mér þarna í gær að veita mér styrk í að klára mitt verkefni elsku Tinna mín!
Love you og sakna þín á hverjum degi, hún vildi að ég hefði hætt fyrir 4 árum því hún sá hve mikið ég var að þjást líkamlega.. en þegar þú fórst frá okkur gafstu mer styrk í að halda áfram,“ skrifaði Aron í afar fallegri færsu til systur sinnar.
Færslan í heild er hér að neðan.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗