Ekkert fær Tindastól stöðvað

Júlíus Orri Ágústsson lék frábærlega.

Tindastóll vann enn einn sigurinn í Norður-Evrópudeildinni, ENBL, þegar liðið vann króatíska liðið Dubrava, 73:71, í fimmtu umferð A-riðilsins í Króatíu í kvöld.

Tindastóll hefur unnið fyrstu fimm leiki sína í Norður-Evrópudeildinni og er í toppsæti riðilsins með tíu stig.

Þetta var fjórði leikur Tindastóls á útivelli í Evrópukeppninni en fyrstu þrír sigrarnir komu allir á útivelli og sá fjórði á Sauðárkróki. 

Tindastóll var með eins stigs forskot í hálfleik, 38:37, en Dubrava náði forystu eftir þriðja leikhluta, 53:51. 

Sauðkrækingar voru hins vegar sterkari í fjórða leikhluta, unnu hann með fjórum stigum, og leikinn með tveimur. 

Nemanja Djurisic var stigahæstur í liði Tindastóls en hann skoraði 19 stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. 

Taiwo Badmus skoraði þá 17 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar og Júlíus Orri Ágústsson skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅