Tugþúsundir undirskrifta safnast fyrir Russell Brand – „Réttlæti fyrir Brand“
Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 21:00
Brand á enn þá sína stuðingsmenn. Mynd/Getty
Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings hinum dæmda nauðgara Russell Brand. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 25 þúsund manns skrifað undir listann.
Í undirskriftasöfnun á vefsvæðinu change.org hafa safnast um 26.700 undirskriftir til stuðnings hinum dæmda nauðgara og kynferðisbrotamanni Russell Brand. Brand hlaut á dögunum tíu og hálfs árs fangelsi í Bretlandi fyrir brot á árunum 2004 til 2009, þegar hann var á meðal þekktustu skemmtikrafta landsins.
Eins og sést á undirskriftasöfnuninni eru ekki allir sannfærðir um sekt hans. En henni hefur verið deilt á samfélagsmiðlareikningum Brand.
„Réttlæti fyrir Russell Brand. Verjið rétt hans til að áfrýja. Standið vörð um málsmeðferð samkvæmt lögum,“ segir í færslu með söfnuninni.
Verði látinn laus tafarlaust
Segir að „sjálfstæð félagasamtök“ hafi hrundið söfnuninni af stað. Það er fólks sem vill að dómar séu „réttlátir, gegnsæir og byggðir á lögum.“ Russell Brand eigi að hafa rétt til þess að áfrýja sínu máli.
Sjá einnig:
Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi
„Russell Brand hefur neitað ásökununum. Við gerum okkur grein fyrir alvarleika brotanna, sem og réttindum og virðingu allra sem málið varðar,“ segir í færslunni. „En við teljum einnig að rétturinn til að áfrýja sé grundvöllur réttlætis. Við trúum því staðfastlega að Russell Brand sé saklaus og krefjumst þess að hann verði látinn laus úr fangelsi tafarlaust. Þessi undirskriftasöfnun snýst ekki eingöngu um rétt hans til að áfrýja, hún snýst um að standa vörð um réttlætið, afhjúpa hvers kyns ranglæti í dómskerfinu og berjast fyrir frelsi Russells.“
Ekki áfrýjað enn
Brand hefur ekki lagt fram beiðni um áfrýjun enn þá en talið er líklegt að hann muni gera það. Hugsanlegt er að hann muni þó skipta um lögmannsteymi fyrst, en hann er sagður æfur út í lögmenn sína eftir dóminn.
„Þetta framtak snýst um meira en bara einn einstakling. Það snýst um þær meginreglur sem við teljum að eigi að vernda alla,“ segir í færslunni. „Réttlátt réttarkerfi verður að gera fólki kleift að vefengja sakfellingar með tilskildum lagalegum leiðum. Við hvetjum ekki til áreitni, hótana eða afskipta af vitnum eða málsmeðferð fyrir dómstólum. Við hvetjum til friðsamlegrar baráttu, upplýstrar umræðu og virðingar fyrir lögunum. Við bjóðum fólki um allan heim, sem trúir á réttláta málsmeðferð og jafnræði fyrir lögum, að skrá nafn sitt.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗