Liverpool horfir til Brasilíu - Enskt stórlið reyndi að kaupa hann í sumar

Arthur Dias, 19 ára gamall miðvörður Athletico Paranaense í Brasilíu, er orðaður við Liverpool, sem ku hafa sent útsendara til að fylgjast með kappanum.

Dias er örvfættur miðvörður sem hefur þegar leikið yfir 50 leiki með aðalliði Athletico Paranaense.

Tottenham reyndi að kaupa Dias síðasta sumar og bauð um 17 milljónir punda en því var hafnað. Brasilíska félagið er sagt vilja um 26 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem er samningsbundinn til ársloka 2028.

Liverpool horfir til hans sem mögulegs framtíðarmanns í vörninni, til að mynda þar sem Virgil van Dijk á sennilega ekki mikið eftir á Anfield.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅