Börnin halda þessu verki uppi

Björk Guðmundsdóttir, Karl Ágúst Úlfsson og Øystein Magnús Gjerde.

Björk Guðmundsdóttir, Karl Ágúst Úlfsson og Øystein Magnús Gjerde. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson

Fornsagnakappinn Egill Skallagrímsson stígur á svið í öllu sínu veldi í Sláturhúsinu – menningarmiðstöð á Egilsstöðum um þessar mundir í glænýjum söngleik fyrir alla fjölskylduna eftir Karl Ágúst Úlfsson. Vinir Egils Skalla heitir verkið sem er frumsýnt á morgun, sunnudaginn 15. november í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.

„Þetta er fjölskyldusöngleikur sem byggist á Egils sögu Skallagrímssonar að hluta en fjallar líka um nútímafólk og bækur. Verkið hefst í bókabúð og fyrir ákveðna töfra tekst að seiða Egil út úr bókinni og svo elta börnin hann yfir í Egils sögu. Þannig gerist verkið bæði í samtíma okkar og á landnámsöld,“ segir Karl Ágúst.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅