Bardagaíþróttaveisla fram undan í Laugardalnum

Keppt verður í Ármannsheimilinu á sunnudaginn.

Keppt verður í Ármannsheimilinu á sunnudaginn. Ljósmynd/Bjarni Baldursson

Það stefnir í sannkallaða bardagaíþróttaveislu í Ármannsheimilinu í Laugardal sunnudaginn 22. nóvember þegar Íslandsmótið í brasilísku jiu-jitsu fer fram. Hátt í 200 keppendur hafa þegar skráð sig til leiks og stefnir því í fjölmennasta Íslandsmót sögunnar.

Brasilískt jiu-jitsu hefur verið í mikilli sókn hér á landi undanfarin ár og vinsældir íþróttarinnar fara sífellt vaxandi. Í dag er hún stunduð hjá 15 félögum víðs vegar um landið og iðkendahópurinn verður sífellt fjölbreyttari.

Þar má finna allt frá ungum börnum til þaulreyndra keppenda. Sömu þróun má sjá á heimsvísu þar sem íþróttin hefur vaxið hratt og skipað sér í hóp þeirra íþróttagreina sem vaxa hvað hraðast.

Keppni á fjórum völlum

Keppni hefst klukkan 9 á sunnudagsmorgun og fer fram á fjórum keppnisvöllum samtímis. Búast má því við þéttri dagskrá og spennandi viðureignum frá fyrstu glímu til þeirrar síðustu.

Á mótinu mætast bæði reynslumiklir keppendur og upprennandi hæfileikafólk sem er að stíga sín fyrstu skref í keppni.

Börn keppa í aldurs- og þyngdarflokkum en fullorðnir í þyngdar- og getuflokkum. Gefst því keppendum á öllum aldri og á ólíkum getustigum tækifæri til að spreyta sig.

„Með metþátttöku í sjónmáli og fjölda spennandi viðureigna er ljóst að Ármannsheimilið verður suðupottur adrenalíns, keppnisskapar og íþróttaanda á sunnudaginn,“ segir mótsstjórinn Pétur Jónasson.

„Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þetta er kjörið tækifæri fyrir áhugasama til að kynnast einni ört vaxandi bardagaíþrótt heims og sjá íslenskt jiu-jitsu í fullum blóma,“ bætir hann við.

Mótið fer fram í Ármannsheimilinu sunnudaginn 22. nóvember og hefst keppni klukkan 9.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅