Greina frá sorglegu andláti í yfirlýsingu - Aldrei séð neitt þessu líkt á 30 árum

Abel Nunez, 18 ára knattspyrnumaður í Argentínu, er látinn eftir að hafa fengið bolta í höfuðið í leik með unglingaliði FC Ezeiza gegn Deportivo Muniz á fimmtudag.

Varnarmaður Deportivo Muniz hreinsaði boltann frá marki af miklum krafti en boltinn fór beint í höfuð Nunez, sem stóð aðeins fjóra til fimm metra frá honum.

„Ég hef fylgst með unglingafótbolta í tæp 30 ár og aldrei séð annað eins. Þetta var eins og rothögg. Strákurinn féll til jarðar og sýndi engin viðbrögð,“ sagði Cristian Rompani, blaðamaður sem varð vitni að atvikinu.

Nunez var fluttur á sjúkrahús þar sem í ljós kom að hann hafði höfuðkúpubrotnað og fengið innvortis blæðingu. Hann gekkst undir aðgerð en lést á sunnudag.

Leiknum var aflýst í kjölfar atviksins og hefur andlát Nunez vakið mikla sorg í argentínskum fótboltaheimi.

„Þetta eru erfiðustu fréttir sem við höfum nokkru sinni þurft að færa. Við kveðjum ungan mann sem átti allt lífið fram undan,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu Ezeiza.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅