Nýtt uppbyggingartímabil á hálendinu hafið

Ólöf K. Sívertsen, formaður Ferðafélags Íslands. Hún segir nýtt uppbyggingartímabil félagsins á hálendinu hafið með Skagfjörðsskála í Þórsmörk. Næst á dagskrá sé frekari endurnýjun skála á Laugaveginum. Emstrur (uppi til vinstri) eru þar fyrst á lista og þar á eftir Álftavatn (stóra mynd). Samsett mynd/Hanna Andrésdóttir/Ferðafélag Íslands

Endurbygging nýs Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk markar upphaf nýs uppbyggingartímabils og endurnýjunar á skálum Ferðafélags Íslands á hálendinu, bæði á Laugaveginum og á Kjalvegi hinum forna.

Eftir að Skagfjörðsskáli verður kláraður og vígður á næsta ári mun félagið horfa til endurnýjunar á öðrum skálum við Laugaveginn, en það er langvinsælasta gönguleið landsins og þar er Ferðafélagið með skála á fimm stöðum. Fyrst í röðinni verður líklega endurnýjun á skálum í Emstrum.

Komið að því að gefa í

Ólöf Kristín Sívertsen, formaður Ferðafélags Íslands, segir í samtali við mbl.is að margir skálar félagsins séu komnir til ára sinna. „Þeir voru margir hverjir reistir af miklum myndarskap á síðustu öld,“ segir Ólöf og tekur fram að mikil vinna sé lögð í reglulegt viðhald skálanna, en uppi á hálendi séu aðstæður krefjandi og mikið álag á byggingum.

„Nú er komið að því að við þurfum að fara að gefa í,“ segir hún og vísar til þeirra skála þar sem umferðin og álagið er mest. Það sé einmitt á Laugaveginum, en líka séu skálar á Kjalvegi hinum forna að komast á tíma.

Endurnýjun Skagfjörðsskála kostar 300 milljónir

Endurbygging Skagfjörðsskála er ekki lítið verk, en hann er stærsti skáli félagsins. Upphaflega var hann reistur árið 1954 og var því orðinn rúmlega 70 ára. Verður vígsla nýja skálans á 100 ára afmæli félagsins á næsta ári, en Ólöf segir að sérstaklega hafi verið hugað að því að horfa til þess að viðhalda gömlu fjallarómantíkinni, en boðið verður áfram upp á svefnpokapláss í skálanum.

Segir hún að samtals kosti það um 300 milljónir að reisa nýjan skála, en félagið hefur meðal annars leitað til félagsmanna og velunnara til að aðstoða við þennan kostnað.

Gamli Skagfjörðsskálinn í Þórsmörk sem nú hefur verið rifinn.

Gamli Skagfjörðsskálinn í Þórsmörk sem nú hefur verið rifinn. mbl.is/Sigurður Bogi

Emstrur vonandi á næstu fimm árum

Þegar þeim framkvæmdum lýkur er komið að því að horfa til næstu framkvæmda. „Væntanlega verða Emstrur næst á dagskránni,“ segir Ólöf, en tekur fram að enn sé ekkert fast í hendi þar og engin föst hugmynd liggi fyrir. Segir hún að vonandi gæti enduruppbygging þar komið til á næstu fimm árum. „Síðan væri það væntanlega Álftavatn eftir það,“ bætir hún við.

Ólöf tekur fram að taka beri tímasetningum með fyrirvara, félagið sé með öfluga byggingarnefnd sem sé að skoða þessi mál og skili tillögum til stjórnar og eftir það verði hafist handa við leyfamál og fleira. Í Emstrum eru nokkur minni hús frekar en eitt stórt skálahús. Ólöf segir allt of snemmt að segja til um hvort félagið muni horfa til þess að fara í umfangsmikið viðhald, endurgerð núverandi skála eða að byggja eitthvað alveg nýtt upp.

Hún telur þó einhverjar breytingar líklegar og vísar í því samhengi til þess að félagið horfi til þess að koma til móts við nútímaþarfir eins og að vera með klósett inni í skálum á sama tíma og halda eigi í gömul einkenni. Hún segir að eins og með Skagfjörðsskála verði þó alltaf áfram horft til skálafyrirkomulagsins og fjallarómantíkur, líkt og félagar hafi lagt mikla áherslu á. „En við viljum þróast með nútímanum.“

Nýr Skagfjörðsskáli er í sama stíl og fyrri bygging þarna, sem var reist 1954. Skálinn verður fullklár og vígður næsta sumar á 100 ára afmæli Ferðafélags Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

Kjalvegurinn taki við eftir Laugaveginn

Aðrir skálar við Laugaveginn eru Hrafntinnusker og Landmannalaugar, en Ólöf segir þá enn nokkuð inn í framtíðina og plön um þá skála því ekki komin jafn langt áfram.

Þá segir hún að þegar búið verði að endurnýja og bæta skálana á Laugaveginum sé komið að því að fara í endurnýjun á Þverbrekknamúla og Þjófadölum á Kjalvegi hinum forna, en það er gönguleið austan megin undir Langjökli milli Hvítárvatns og Hveravalla.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅