Hafnarfjörður svarar fyrir víg álftarinnar

Álftin á Víðistaðatúni skömmu áður en meindýraeyðir gekk henni milli bols og höfuðs í gær að ósk bæjarins, en í máli Gunnhildar Örnu samskiptastjóra bæjarins kemur fram að hrafnar sátu um dýrið sem ekki var talið heilt heilsu. Skjáskot/Úr myndskeiði Dýravaktarinnar

„Álftin á Víðistaðatúni hafði verið undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar í um tíu daga vegna áhyggna af velferð hennar. Þegar sást til hrafna sitja um fuglinn var ákveðið að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari þjáningar.“

Þetta segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar í skriflegu svari til mbl.is um álft sem meindýraeyðir skaut á tjörn á Víðistaðatúni í gær og kallaði á sterk viðbrögð dýraverndunarsamtakanna Dýravaktarinnar.

Ingiveig Gunnarsdóttir formaður Dýravaktarinnar ræddi málið við mbl.is.

Enn fremur segir Gunnhildur ákvörðunina um aflífun álftarinnar hafa verið tekna í samráði við aðila með staðgóða þekkingu á fuglalífi og hafi lögregla verið upplýst um aðgerðina fyrir fram.

Hræið sent til rannsóknar sem venja sé

Hræ álftarinnar hafi nú verið sent til rannsóknar á Keldum svo sem venjan sé þegar aðstæður sem þessar komi upp og muni niðurstöðurnar vonandi varpa frekara ljósi á ástand dýrsins.

„Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á velferð dýra og ákvarðanir um aflífun eru ekki teknar af léttúð. Í kjölfar ábendinga Dýravaktarinnar mun bærinn fara yfir verklagið og meta hvort betur hefði mátt standa að málum. Það er mikilvægt að rétt sé staðið að aðgerðum sem þessum,“ skrifar Gunnhildur og lýkur svarinu með því að ákvörðun bæjarins hafi verið í samráði við ákvæði laga um velferð dýra númer 55/2013.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅