Mosi hlaut viðurkenningu í London
Meðal eigenda Mosa eru Arnar Jón Agnarsson, matreiðslumaðurinn Hrefna Sætran og Björn Árnason. Ljósmynd/Aðsend
Íslenska ginmerkið Mosi hlaut annað sæti í flokknum ginmerki ársins á The Spirits Business Awards, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Verðlaunin voru afhent í London fimmtudaginn 12. nóvember.
Meðal eigenda Mosa eru Arnar Jón Agnarsson, matreiðslumaðurinn Hrefna Sætran og Björn Árnason.
Að verðlaununum stendur fagtímaritið The Spirits Business. Dómnefnd skipa fulltrúar ritstjórnar þess og óháðir sérfræðingar úr áfengisgeiranum. Í flokknum ginmerki ársins er meðal annars horft til vöruframboðs, vaxtar, gæða, dreifingar og sjálfbærni.
Tunnur í jökli og hraunhelli
Sérstaða Mosa felst meðal annars í því að ginið er látið þroskast í eikartunnum á ólíkum stöðum á Íslandi. Tunnurnar hafa meðal annars verið við Eldfell í Vestmannaeyjum, inni í Langjökli, í Raufarhólshelli og við Hvammsvík.
Samkvæmt tilkynningunni eru notaðar tunnur sem áður hafa geymt ólíkar tegundir áfengis. Tunnugerðin og aðstæður á hverjum stað eigi þátt í að móta karakter hverrar útgáfu.
„Viðurkenningin skipar Mosa meðal fremstu ginmerkja heims. Þetta er ótrúleg viðurkenning fyrir okkur. Þegar við hófum að þróa Mosa var hugmyndin að búa til gin sem ætti sér enga hliðstæðu í heiminum. Við vildum ekki bara framleiða gott gin heldur leyfa íslenskri náttúru að verða hluti af því hvernig það verður til,“ segir Arnar Jón, stofnandi Mosa, í tilkynningunni.
Sérstaða Mosa felst meðal annars í því að ginið er látið þroskast í eikartunnum á ólíkum stöðum á Íslandi. Hér má sjá Mosa-tunnur í Raufarhólshelli. Ljósmynd/Aðsend
Sjá tækifæri erlendis
Mosi er framleiddur í takmörkuðu magni og hver útgáfa tengist ákveðnum stað, tunnugerð og þroskunarferli. Að sögn fyrirtækisins hafa viðræður við erlenda dreifingaraðila farið vaxandi.
Arnar Jón segir viðurkenninguna marka áfanga í uppbyggingu vörumerkisins.
„Við höfum alltaf litið á Mosa sem alþjóðlegt vörumerki með sterkar íslenskar rætur. Þessi verðlaun eru stór áfangi í þeirri vegferð og skapa ný tækifæri til að kynna íslenska nýsköpun og íslenska náttúru fyrir neytendum um allan heim.“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/29/1692973.jpg)
