Fór með Snoop Dogg í Sixtínsku kapelluna

Martha Stewart og Snoop Dogg hafa verið góðir vinir um árabil. Hér eru þau í New York í október 2024 þar sem þau fögnuðu útgáfu hundraðustu bókar Stewart. AFP/Astrid Stawiarz

Martha Stewart hefur gaman af því að kynna rapparann Snoop Dogg fyrir listaverkum á ferðum þeirra um heiminn. Hún fór með honum í Sixtínsku kapelluna í Vatíkaninu, þar sem hann hafði aldrei komið áður, og saman skoðuðu þau Síðustu kvöldmáltíðina eftir Leonardo da Vinci í Mílanó.

Þetta sagði Stewart í samtali við Page Six í gær þegar 225 ára afmæli dagblaðsins New York Post var fagnað í Empire State-byggingunni í New York.

Byggingin kæmi líka við sögu ef Stewart fengi að skipuleggja hinn fullkomna dag í borginni með vini sínum. Hún kvaðst myndu fara með honum upp á topp hússins og heimsækja nokkur söfn, enda hefði hann gaman af því að fræðast um list.

Að kvöldi yrði ítalski veitingastaðurinn Elio’s fyrir valinu. Þótt Snoop Dogg hafi að sögn Stewart nokkuð sérstakan matarsmekk var hún viss um að þar fyndi hann eitthvað við sitt hæfi.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅