Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“
Framtíð gusunnar Sækots er í uppnámi en á morgun tekur Héraðsdómur Reykjavíkur fyrir aðfarabeiðni borgarinnar sem freistar þess þar að endurheimta grásleppuskúrinn sem hýsir starfsemina. Telur borgin að gusumeistarinn Vala Baldursdóttir hafi sölsað skúrinn undir sig með ólögmætum hætti en deilt er um eignarhaldið eftir að fyrrum eigandi skúrsins rifti afsali sínu til borgarinnar. Vala furðar sig á hörkunni í málinu en í sumar hafði borgarráð verið jákvætt í garð gusunnar og framlags hennar til heilsueflingar borgarbúa.
Deilt um eignarhaldið
Saga málsins hefst fyrir tæpum tuttugu árum. Árið 2007 hafði borgin skipað starfshóp um verndun menningarminja á Grímsstaðavör við Ægisíðu sem auglýsti eftir eigendum grásleppuskúranna sem þar er að finna. Gaf sig þá fram Magnús Ingólfsson, en faðir hans heitinn átti einn skúrinn. Bauðst Magnús til að afsala skúrnum til borgarinnar að gefnu því skilyrði að borgin tæki að sér viðhald og varðveislu menningarminjanna. Árið 2024 taldi Magnús ljóst að borgin hefði ekki staðið við sitt. Hann rifti afsalinu og seldi skúrinn til Völu. Hófst þá saga Sækots sem á skömmum tíma festi rætur á Ægissíðunni, kom sér upp þéttu og góðu samfélagi gusuaðdáenda og hefur þjónustað þúsundir gesta.
Sú staða kom svo upp að borgin neitar að samþykkja riftunina og telur sig því enn eiganda skúrsins. Borgarlögmaður lýsti því í minnisblaði til borgarráðs í nóvember á síðasta ári að tilraunir til að endurheimta skúrinn frá Völu hefðu ekki borið árangur og því væri ekki um annað að velja en að leita til dómstóla. Ótækt væri að selja Völu skúrinn því það myndi senda þau skilaboð að fólk gæti sölsað undir sig eigur borgarinnar.
Minnisblaðið var tekið fyrir í borgarráði í sumar. Meirihlutinn bókaði í málinu að gusumenning væri jákvæð og til þess fallin að hvetja til hreyfingar, samveru og betri heilsu. Ekki var því lýst í bókinni hver næstu skref yrðu í málinu en þó var tekið fram að stefna ætti að farsælli niðurstöðu sem byggði á lögum, virðingu fyrir menningararfi og fjölbreyttum tækifærum til útivistar og heilsueflingar fyrir borgarbúa.
Sérstakt að fara þessa leið
Farsæl lausn felst, að mati Völu, ekki í því að leita rakleitt til dómstóla. Hún harmar stöðuna sem málið er nú komið í og furðar sig á hörkunni. Hún hafi ávallt verið reiðubúin að leita lausna enda skiptir það hana öllu máli að Sækot fái áfram að sinna sínu góða starfi. Tilraunir hennar til að ná tali af ráðamönnum borgarinnar hafa þó ekki borið árangur.
„Ég hef verið að reyna að fá fund. Ég hef sent mörg erindi þar sem ég bið um fund við borgarstjóra, eða einhvern, til að reyna að finna farsæla lausn. Auðvitað þarf að fara eftir reglum og ég tel þetta ekki vera persónulega árás eða aðför, en mér finnst sérstakt að fara þessa leið án þess að reyna að komast fyrst að niðurstöðu.“
Það sé eins undarlegt að málið sé rekið af viðlíka hörku í borgarstjóratíð Hildar Björnsdóttur sem hefur verið fastagestur í gusunni. Vala segir að vissulega sé Hildur ekki að reka málið sjálf en hún sé yfirmaður borgarinnar: „Hún gæti stoppað þetta ef hún vildi en hefur valið að gera það ekki.“
Vala segist þó ekki erfa málið við borgarstjóra og er ekki að gagnrýna hana persónulega. Staðan sýni bara hvernig ekki fari saman hljóð og mynd.
„Þetta er frekar mikil harka, því þetta er óhefðbundið mál,“ segir Vala. Málið eigi sér enga hliðstæðu enda varði það skúr sem hafði staðið tómur í um það bil hálfa öld. Borgin hafi lýst vilja til að varðveita þessa menningararfleifð en þær tilraunir dagað uppi í nefnd eftir nefnd.
„Borgin hefur sett saman nefnd eftir nefnd til að reyna að finna þessu svæði einhvern tilgang, eitthvað til að halda atvinnusögunni lifandi. En nú hefur skapast ný atvinnusaga, saga í kringum Sækot og fólkið sem er að fara út í sjó að baða sig. Alveg sama hvernig málið fer þá verður þetta núna alltaf hluti af atvinnusögu svæðisins, eða svo mætti segja. Við erum að búa til nýja sögu sem byggir á þeirri gömlu. Ég er mikill talsmaður þess að halda sögunni lifandi og segja fólki frá svæðinu, t.d. því að það voru grásleppukarlarnir sem hlóðu grjótgarðinn sem gerir okkur kleift að fara í sjóinn.“
Mynd/Aðsend
Staður fyrir holla samveru og gleði
Gusan er að sögn Völu staður þar sem fólk getur lagt símana frá sér, stigið út úr amstri dagsins og notið samveru með heilsusamlegum hætti. Sækot hefur eins verið með sérstök kvöld fyrir ungmenni þar sem spiluð er lífleg tónlist og unga fólkið getur skemmt sér án áfengis. Kynslóðir koma saman, ömmur með barnabörnin, foreldrar með börn sín um tvítugt, og njóta saman.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt,“ segir Vala og nefnir að fjöldi þekktra andlita hafi sótt gusuna, áðurnefndur borgarstjóri, borgarfulltrúar, knattspyrnumenn, embætti landlæknis, ráðherrar og fleiri. Líklega yrði samtal Völu og blaðamanns óþarflega langt ef hún ætlaði að telja upp þá fjölmörgu gesti sem hafa komið í Sækot.
Vala segir málið fyrst og fremst byggjast á ágreiningi um eignarhald skúrsins. Þegar Vala keypti skúrinn árið 2024 leitaði hún strax til borgarinnar og upplýsti um kaupin og stöðu mála. Viðbrögðin sem hún fékk voru mjög jákvæð. Meðal annars fékk hún bréf frá borgarfulltrúa sem óskaði henni til hamingju. Síðar hafi komið upp að einhver vafi væri um eignarhaldið en áfram voru skilaboðin jákvæð frá borginni.
„Svo segir hann: En við ætlum ekki að setja það fyrir okkur með að skoða þessa hugmynd þína og nýtingu. Og svo segir hann líka: Haltu bara þínu striki með að fá heimild fyrir þessum rekstri þínum og við tökum sérstaklega á eignarhaldinu. Hann var í raun og veru að segja mér: Haltu bara áfram, við skulum pæla í þessum eignamálum.“
Vala varð himinlifandi með viðbrögðin og hversu vel erindi hennar var tekið. Hún ákvað því að fara að ráðum borgarinnar og hélt sínu striki og hefur gert það síðan þó gefið hafi á bátinn.
Síðan skyndilega var afstaðan orðin önnur og harkan slík að þrátt fyrir fyrirheit borgarráðs um farsæla lausn á málum er Vala nú á leiðinni í dómsal. Hún ítrekar að hafa ávallt verið tilbúin í viðræður, en borgin kaus að fara ekki þá leið. Vala hefur ítrekað komið því á framfæri að það skipti ekki höfuðmáli hver eigi skúrinn svo lengi sem gusan fær að vera þar. Þarna er komið blómlegt, jákvætt og gott samfélag. Málið varðar ekki bara Völu sjálfa og Sækot heldur þá sem sem sækja gusuna, starfsmenn og fleiri. Einnig snýst þetta um réttlætiskennd. Hér er um að ræða deilur um eignarhald sem ekki verður leyst úr með aðfarabeiðni. Vala hafði í upphafi fengið jákvæðar viðtökur frá borginni en fær nú ekki áheyrn til að greiða úr stöðunni. Vala er þó jákvæð að eðlisfari og vonar að allt fari vel, að Sækot fái áfram að bjóða upp á gusu óháð því hver á grásleppuskúrinn.
Hægagangur
Gögn málsins bera einnig með sér að borgin hafi verið töluvert svifasein. Magnús Ingólfsson rifti afsali sínu þann 16. desember 2024. Borgin brást ekki við riftuninni fyrr en 5. mars 2025 og var þá meðvituð um að Vala hefði í millitíðinni keypt skúrinn og fengið umráð hans, en þegar borgin mótmælti riftuninni var afrit sent til Völu. Borgarlögmaður sendi minnisblað vegna málsins til borgarráðs þann 25. nóvember árið 2025. Það var svo í maí á þessu ári sem borgin sendi bréf til Völu og Magnúsar þar sem skorað er á þau að afhenda borginni skúrinn. Borgarráð tók málið fyrir 25. júní og nú í nóvember er aðfarabeiðni komin til dómstóla, rétt tæpum tveimur árum eftir riftunina. Framtíð grásleppuskúranna við Ægissíðu hefur verið til umræðu í borginni í rúma tvo áratugi og hafa ýmsar hugmyndir verið viðraðar um mögulega nýtingu þeirra. Þrátt fyrir að nokkrir starfshópar hafi verið skipaðir þá var lítið að frétta frá Grímsstaðavör þar til í faraldri COVID þegar hafist var handa við að gera skúrana upp. Skúrinn sem hér um ræðir var sá fyrsti til að fá andlitslyftingu en að henni lokinni virðist skúrinn aftur hafa farið að safna ryki, eða allt þar til gusustarfsemin hófst.
Sagði deildarstjóri minjavörslu og rannsókna hjá Borgarsögusafni árið 2021 að ein hugmyndin væri að nota skúrana sem búningsklefa fyrir sjósundkappa.
Vala berst á fleiri vístöðum en heilbrigðiseftirlit borgarinnar telur gusuna starfsleyfisskylda. Mat eftirlitsins byggir á því að um baðhús sé að ræða, en Vala er á öðru máli. Aðfarabeiðnin verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun klukkan 9:30
Sjá einnig: Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið og Gusumeistarinn sem tók yfir grásleppuskúr með umdeildum hætti þarf starfsleyfi
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗