Fullyrt að Real Madrid skoði tilboð

Real Madrid er tilbúið að skoða tilboð í Trent Alexander-Arnold, aðeins rúmu ári eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Liverpool.

Sky í Þýskalandi greinir frá þessu en enski bakvörðurinn, sem er 28 ára, hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá spænska stórliðinu.

Alexander-Arnold hefur verið orðaður við endurkomu til Englands, bæði við Liverpool og Chelsea.

Ekki eru allir á sama máli um framtíð kappans en Fabrizio Romano hefur til að mynda sagt að hann ætli sér að vera áfram hjá Real Madrid og að það komi ekki til greina að hann fari.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅