Sjálfstæðismaður fagnar ekki vistaskiptum Ingvars – „Hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær“
Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 20:01
Elías spyr hvort vistaskipti Ingvars hafi átt rétt á sér.
Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri og Sjálfstæðismaður, fagnar ekki vistaskiptum þingmannsins Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í sinn eigin flokk. Bendir hann á að Ingvar hafi komist á þing með atkvæðum fólks sem kaus ekki Sjálfstæðisflokkinn.
„Ég hef kosið Sjálfstæðisflokkinn oftar en ég í fljótu bragði man. Það þýðir ekki að mér þyki ástæða til að klappa fyrir öllu sem kemur flokknum vel. Ég hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær þar sem flokksfélagar mínir, hver í kapp við annan, dásömuðu hetjudáð fyrrverandi þingmanns Viðreisnar um leið og fagnað var heimkomu hins glataða sonar,“ segir Elías, sem var sveitarstjóri Langanesbyggðar og síðar bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Orða og hetjusaga
Elías segir að vistaskipti Ingvars hafi ekki beint komið á óvart. Almælt hafi verið innan flokksins að hann væri á leiðinni. Elías segir hins vegar að það sé hægt að bjóða mann velkominn án þess að hengja á hann orðu og semja um hann hetjusögu.
„Ég á líka erfitt með að trúa því að sama lofræða heyrðist ef hann væri á leiðinni í hina áttina,“ segir Elías.
Elías Pétursson fyrrverandi bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Reifar hann frásögn Jódísar Skúladóttur, fyrrverandi þingkonu Vinstri grænna sem sagðist hafa varið Jón Gunnarsson ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti þvert um geð.
„Áður en við hefjum sannfæringu Ingvars til skýjanna ættum við að spyrja okkur hvort við hefðum sýnt sannfæringu Jódísar sömu virðingu ef hún hefði fylgt henni og greitt atkvæði með vantraustinu,“ segir hann.
Ekki atkvæði Sjálfstæðisflokksins
Bendir hann einnig á að Ingvar hafi komist á Alþingi með atkvæðum fólks sem kaus Viðreisn en ekki Sjálfstæðisflokkinn. Hann hafi gefið sínar skýringar en það sé í lagi að spyrja hvort þær dugi.
„Hann segir Viðreisn hafa vikið frá kosningaloforðum sínum í skattamálum. Það þarf að skoða efnislega. En enginn flokkur kemst í ríkisstjórn án þess að semja. Það þekkjum við sjálfstæðismenn vel. Þau rök notuðum við ítrekað þegar við sátum í stjórn og samherjar okkar þurftu að kyngja erfiðum málamiðlunum. Þá var það kallað ábyrgð að standa með því sem samið hafði verið um. Nú er því fagnað að þingmaður segi hingað og ekki lengra. Hvort tveggja getur átt rétt á sér, en matið má ekki ráðast af því einu hvort Sjálfstæðisflokkurinn hagnast á niðurstöðunni,“ segir Elías.
„Þingmenn eru bundnir við sannfæringu sína samkvæmt stjórnarskrá og enginn á að þurfa að greiða atkvæði gegn henni. En það er eitt að hafna flokksaga og annað að taka þingsætið með sér yfir í annan flokk. Þingmaður verður að geta útskýrt slíka ákvörðun fyrir fólkinu sem kaus hann. Það dugar ekki að vísa til eigin sannfæringar og telja þar með öllum spurningum svarað.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗