Óðinn með stórleik í Evrópu

Óðinn Þór Ríkharðsson spilað frábærlega.

Óðinn Þór Ríkharðsson spilað frábærlega. AFP/Johan Nilsson

Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson átti stórleik í sigri svissneska liðsins Kadetten á Izvidac í Evrópudeildinni í handbolta í Bosníu í kvöld. 

Leikurinn var liður í C-riðli Evrópudeildarinnar en Kadetten er í toppsæti riðilsins með átta stig eða fullt hús stiga eftir fjóra leiki. 

Óðinn var markahæstur allra í leiknum en hann skoraði tíu mörk úr tólf skotum. 

Arnar drjúgur á útivelli

Arnar Freyr Arnarsson átti þá góðan leik í 33:31-sigri þýska liðsins Flensburg á Buzau í E-riðlinum í Rúmeníu. 

Flensburg er einnig með átta stig eða fullt hús stiga í toppsæti riðilsins. 

Arnar skoraði þrjú mörk fyrir þýska liðið. 

Jóhannes markahæstur í tapi 

Jóhannes Berg Andrason var þá markahæstur í tapi danska liðsins Holstebro fyrir spænska liðinu Torrelavega, 31:27, í Danmörku. 

Holstebro er í öðru sæti F-riðilsins með fjögur stig eftir tapið. 

Jóhannes skoraði mest í liði Holstebro eða sjö mörk. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði ekki en Arnór Atlason er þjálfari liðsins. 

Tryggvi Þórisson skoraði þá eitt mark í tapi norska liðsins Elverum fyrir Nexe, 38:32, í Króatíu. 

Elverum er í þriðja sæti A-riðilsins með fjögur stig. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅