Grand Theft Auto þegar hlotið verðlaunatilnefningar
Grand Theft Auto auglýstur í Berlín. Tölvuleikurinn kemur út á aðfaranótt föstudags. AFP/Ralf Hirschberger
Grand Theft Auto VI, tölvuleikur Rockstar sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu, kemur ekki út fyrr en á aðfaranótt föstudags, nánar tiltekið klukkan fimm um nóttina.
Þrátt fyrir það hefur GTA VI hlotið átta tilnefningar til árlegu tölvuleikjaverðlaunanna, „Leikur ársins“.
Skipuleggjendur hátíðarinnar tilkynntu þetta í dag. Um hátíðina er sagt að hún sé hliðstæða Óskarsverðlaunanna þegar kemur að tölvuleikjum.
GTA VI hefur verið þrettán ár í vinnslu en síðasti leikur seríunnar, GTA V, kom þá út.
Stærsta afþreyingarafurð allra tíma
Málsmetandi menn segja að útgáfa tölvuleikjarins sé stærsta útgáfa á afþreyingarvöru óháð formi fyrr og síðar.
Tölvuleikjaserían er gríðarlega kostnaðarsöm en um leið arðsöm. Hún hefur rakað inn milljörðum dala fyrir framleiðandann bandaríska Take-Two Interactive.
Fróðlegt verður að sjá hversu miklir peningar skila sér í kassann á fyrsta degi á föstudag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
