Konur lesa meira en karlar
Konur lesa meira en karlar á Íslandi.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Hún sýndi að lestur landans hefði aukist heilt yfir.
„Konur verja að jafnaði 80 mínútum á dag í bóklestur en karlar 49 mínútum.“
22% karla, eða rúmur fimmtungur, ver engum tíma í bóklestur á dag. Hið sama má segja um 10% kvenna.
„Hjá bæði konum og körlum hefur þetta hlutfall lækkað frá því í fyrra, þegar það var 24% hjá körlum og 15% hjá konum.“
Konur lásu að jafnaði þrjár bækur síðastliðinn mánuð en karlar rétt undir tveimur.
Konur hlusta líka á fleiri hljóðbækur en karlar. 37% kvenna hlusta á hljóðbækur vikulega samanborið við 19% karla.
Fólk með tvö börn les mikið
„Þeir hópar sem lesa flestar bækur eru meðal annars konur, fólk með framhaldsnám á háskólastigi og fólk á aldrinum 25 til 34 ára.“
Athygli vekur að fólk með tvö börn í heimili eða fleiri les að jafnaði þrjár bækur á mánuði sem er marktækt hærra samanborið við tvær bækur hjá þeim sem hafa engin börn í heimili.
Alls hafa 76% landsmanna lesið hefðbundna bók síðustu tvo mánuði en það er 4% aukning frá því í fyrra þegar hlutfallið var 72%.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗