Grátlegt hjá Valsmönnum

Fyrirliðinn Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk.

Fyrirliðinn Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk. mbl.is/Karítas

Valur mátti þola tap með minnsta mun fyrir Tatabánya frá Ungverjalandi, 29:28, í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handbolta í Tatabánya í kvöld. 

Valsmenn eru í öðru sæti H-riðilsins með fjögur stig eftir tapið en þetta var fyrsti sigur Tatabánya, sem er í þriðja sæti með tvö. Slovan frá Slóveníu er síðan efst með sex stig og danska liðið Mors-Thy neðst með tvö. 

Gunnar Róbertsson kom Valsmönnum tveimur mörkum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir, 28:26, en Tatabánya skoraði síðustu þrjú mörk leiksins og vann með marki frá Tamás Papp á síðustu sekúndum leiksins. 

Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk fyrir Val og Gunnar sjö. Færeyingurinn Bjarni í Selvindi kom þar á eftir með fimm mörk. Stiven Tobar Valencia lék þá aftur með Val í fyrsta sinn í kvöld og skoraði þrjú mörk. 

Björgvin Páll Gústavsson varði þá átta skot og var með 22% markvörslu. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅