Fyrirliði ÍR skiptir í Njarðvík
Körfuknattleiksmaðurinn Hákon Örn Hjálmarsson er farinn frá ÍR og genginn í raðir Njarðvíkur.
Hákon skrifar undir samning við Njarðvíkinga út yfirstandandi tímabil en hann hefur skorað 16 stig og gefið þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik með ÍR á leiktíðinni.
Hákon var fyrirliði ÍR-inga og kom upp í gegnum unglingastarf félagsins. Hann á að baki átta tímabil með liðinu í úrvalsdeild en var einnig háskólanemi í Bandaríkjunum um tíma.
Samkvæmt Njarðvík vildi Hákon aftur á móti nýja áskorun og ákvað því að semja við Suðurnesjafélagið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗