Ólígarki mætir sinni fyrrverandi í stærsta skilnaðarmáli í sögu Bretlands - Þykir prófsteinn á umdeilda þróun

Hvað er sanngjarnt og hvað er ekki? Um þetta geta menn deilt. Fyrrverandi eiginkona rússnesks ólígarða telur það til dæmis sanngjarnt að fá rétt rúma 100 milljarða í stærsta skilnaðarmáli sem nokkru sinni hefur verið rekið í Bretlandi. Rétt er að geta þess að þar er um hófstillta varakröfu Nataliu Potanina að ræða ef svo illa fer að dómstólar hafni tilkalli hennar til stærri hlutdeildar í eignum Vladimírs Potaníns sem eru metnar á rúmlega 3.700 milljarða.

Hér er um himinháar fjárhæðir að ræða og á málið sér því töluverðan aðdraganda, en Natalia höfðaði það fyrst árið 2018 og verður það loksins tekið fyrir í Hæstarétti Englands á morgun.

Giftu sig og skildu á Rússlandi

Hjónin kynntust á unglingsárunum og voru gift í þrjátíu ár áður en þau skildu í Rússlandi árið 2014. Þá hófust þessar hatrömmu deilur sem loks sér fyrir endann á. Vladimír stýrir gríðarstóru viðskiptaveldi og tókst að auðgast verulega við fall Sovétríkjanna. Meðal annars á hann stóran hlut í námurisanum Norilsk. Lögmenn Vladimírs, sem um tíma gegndi embætti aðstoðarforsætisráðherra í valdatíð Borís Jeltíns á tíunda áratugnum, segja kröfur Natalíu „úr öllu hófi“.

Saman eiga þau þrjú börn og hefur Natalía meðal annars rökstutt kröfu sína með því að það hafi verið henni reiðarslag þegar Vladimír byrjaði með nýrri konu. Rússneskir dómstólar dæmdu henni helming þeirra eigna sem Vladimír átti með beinum hætti en undanskildu þar mjög stóran hluta auðæfa hans sem eru meðal annars bundin í fyrirtækjum og sjóðum.

Lögmenn Natalíu fullyrða að Natalia hafi unnið fyrir sínum hlut auðæfa fjölskyldunnar eftir áratuga hjónaband þar sem hún sá meðal annars um börn þeirra hjóna. Eftir skilnaðinn hafi hún aðeins fengið um 5,2 milljarða frá fyrrverandi manni sínum, sem er kannski stór fjárhæð en í ljósi heildarvirðis Vladimírs er kannski ekki skrítið að Nataliu finnist það varla upp í nösina á ketti. Vladimir fullyrðir þó að hann hafi þegar greitt sinni fyrrverandi rúma 10 milljarða.

Natalia flutti til Bretlands eftir skilnaðinn árið 2014 og er orðin breskur ríkisborgari. Lögmenn ólígarkans vilja þó meina að hún hafi ekki myndað það sterk tengsl við Bretland að það réttlæti að skilnaðarkjörin verði endurupptekin þar í landi.

Höfuðborg skilnaðarferðamennsku

London er vinsæll áfangastaður þeirra sem telja sig hlunnfarna í hjónaskilnaði og hefur verið kölluð skilnaðarhöfuðborg heimsins eftir röð mála þar sem dómstólar dæmdu svimandi háar fjárhæðir til aðila sem þóttu standa höllum fæti samanborið við moldríka fyrrverandi maka. Byggir skilnaðarlöggjöfin í Bretlandi á þeirri forsendu að fólk eigi rétt til þess að njóta sömu lífsgæða eftir skilnað og það naut í hjónabandinu. Natalia hefur bent á að þeir 5,2 milljarðar sem hún hafi fengið dugi engan veginn til að tryggja henni sambærilegt líf og hún átti með ólígarkanum.

Hæstiréttur Englands hefur áður hafnað því að taka mál Natalíu fyrir og varaði við því að ef málið fengi fram að ganga yrðu engin takmörk fyrir „skilnaðarferðamennsku“ í Bretlandi. Áfrýjunardómstóll var á öðru máli og gerði Hæstarétti að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Breskir fréttamenn segja að hér sé um að ræða mikilvægan prófstein á stöðu London sem alþjóðlegrar miðstöðvar skilnaðarmála. Lögmenn eru mjög hrifnir af þessari þróun sem gerir þeim kleift að raka inn stjarnfræðilegum lögmannsþóknunum. Þróunin er þó umdeild, sérstaklega í ljósi þess að í málum sem þessum eru breskir dómstólar að taka fyrir mál þar sem hjón hvorki giftust né skildu í Bretlandi. Allt hjónaband þeirra átti sér stað í öðru landi.

DailyMail greinir frá. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅