Robertson skaut föstum skotum á þjálfarann sinn
Andy Robertson, fyrirliði Skotlands, var allt annað en sáttur eftir 4-0 tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni í gær og sendi nýjum landsliðsþjálfara liðsins, Sebastien Pocognoli, skýr skilaboð.
Pocognoli tók við liðinu í ágúst og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum. Hann hefur beðið um þolinmæði á meðan hann innleiðir nýjan leikstíl.
„Ég held að maður hafi engan tíma í landsliðsfótbolta. Stuðningsmennirnir sem ferðast út um allt, ætla þeir að gefa okkur tíma? Nei. Fólkið á Hampden Park, ætlar það að gefa okkur tíma? Nei.
Við höfum engan tíma. Leikmennirnir hafa engan tíma. Við verðum að gera betur,“ sagði Robertson ómyrkur í máli eftir tapið.
Robertson lék sinn 103. landsleik og varð þar með leikjahæsti landsliðsmaður skoska liðsins frá upphafi, en hann fór fram úr Kenny Dalglish.
Skotar enduðu í þriðja sæti síns riðils í B-deild Þjóðadeildarinnar og verða í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM 2028.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗