Kom ekki á óvart þó vistaskiptin hafi verið snögg
„Ég var nú búinn að heyra af þessu og gruna þetta, þannig að í sjálfu sér kom þetta manni ekkert á óvart, þannig,“ segir Guðmundur, sem segir ákvörðun Ingvars um að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn hafa verið öllu óvæntari. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/María Matthíasdóttir
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka, segir úrsögn Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar ekki hafa komið sér á óvart en telur þó ólíklegt að fleiri segi sig úr þingflokkum ríkisstjórnarinnar.
Sjálfur hyggst hann engan veginn láta af stuðningi sínum við ríkisstjórnina og segist una sér vel í þeirri stöðu sem hann er í dag, en hann sagði sig úr þingflokki Flokks fólksins fyrr í haust án þess þó að láta af stuðningi sínum við ríkisstjórnina.
„Ég var nú búinn að heyra af þessu og gruna þetta, þannig að í sjálfu sér kom þetta manni ekkert á óvart, þannig,“ segir Guðmundur, sem segir ákvörðun Ingvars um að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn hafa verið öllu óvæntari.
„En kannski þessi vistaskipti, jú, þetta er að vísu svolítið snöggt.“
Telur úrsögnum lokið í bili
Ingvar er þriðji þingmaður ríkisstjórnarinnar sem segir sig úr þingflokki sínum í haust í kjölfar deilna, persónulegra sem pólitískra. Hinir tveir, Guðmundur og Jón Gnarr, styðja ríkisstjórnina þó enn
Aðspurður um það hvað hafi bent til þess að óánægja Ingvars kynni að valda brotthvarfi hans úr þingflokki Viðreisnar segir Guðmundur einfaldlega að hvískur þess efnis hafi borist eyrum sér nokkrum sinnum.
„Maður var búinn að vera að heyra þetta svona út undan sér, að það gæti verið einhver óánægja. Að öðru leyti, ég meina... miðað við það sem maður var búinn að heyra kom þetta manni ekkert sérstaklega á óvart.“
Hann kveðst ekkert hafa heyrt af öðrum þingmönnum sem kunni að vera í svipuðum hugleiðingum, en útilokar þó ekki að fleiri muni fylgja Ingvari út úr ríkisstjórnarflokkunum.
„Klukkutími í pólitík er langur tími. Það getur allt skeð, en ég hef ekkert heyrt um að það sé neitt annað svona lagað í gangi, allavega sem ég veit um. En aldrei segja aldrei, það þýðir ekkert.“
Líður ágætlega þar sem hann er í dag
Guðmundur Ingi þvertekur þó fyrir það að hann sé farinn að leiða hugann að því að gangast til liðs við stjórnarandstöðuflokkana.
„Nei, ekkert svoleiðis, nei,“ segir hann og og kveðst jafnframt lítið hafa að segja um kenningar sem heyrst hafa þess efnis að hann hyggist ganga til liðs við Samfylkingu eða jafnvel Framsóknarflokk.
„Nei, ég held að það sé búið að máta mig við alla flokka, og eins og ég segi, ég tek bara einn dag í einu og mér líður ágætlega í mínu hlutverki eins og staðan er í dag.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗