Íslandsmeistarar krýndir á Akureyri
Skautahöllin á Akureyri verður vettvangur Íslandsmóts Skautasambands Íslands í listskautum og skautahlaupi dagana 27. til 29. nóvember. Ókeypis verður fyrir áhorfendur alla keppnisdagana.
Skráðir þátttakendur eru 53. Af þeim keppa 45 í listskautum en átta í skautahlaupi. Keppt verður í nokkrum aldurs- og getuflokkum, frá yngstu iðkendunum upp í unglingaflokka.
Skautahlauparar ríða á vaðið föstudagskvöldið 27. nóvember. Keppni hefst klukkan 21.30 og verða styttri vegalengdir á dagskrá það kvöld.
Listskautakeppnin hefst klukkan 10.45 á laugardagsmorgun og stendur fram eftir degi. Skautahlauparar taka síðan aftur við klukkan 16.30 þegar keppt verður í lengri vegalengd.
Keppni heldur áfram klukkan níu á sunnudagsmorgun með frjálsum prógrömmum í flokkunum Advanced Novice og Junior Women. Að þeim loknum fer verðlaunaafhending fram á ísnum.
Í tilkynningu Skautasambandsins eru Akureyringar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta, fylgjast með keppendum og kynnast bæði listskautum og skautahlaupi.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗