Timothée Chalamet með íslenska húfu

Einn vinsælasti leikarinn í dag var með húfu frá íslenska fatamerkinu Coppermine í myndaþætti tímaritsins Vanity Fair sem var tekinn hér á landi. Samsett mynd/Instagram/Timothée Chalamet

Bandaríski stórleikarinn og hjartaknúsarinn Timothée Chalamet var með húfu frá íslenska fatamerkinu Coppermine í myndaþætti í jólablaði Vanity Fair sem kom nýlega út. Myndin af Chalamet var tekin hér á landi. 

Chalamet birtir sjálfur mynd af sér á samfélagsmiðlinum Instagram. 

Coppermine er íslenskt fatamerki sem hefur vakið mikla athygli undanfarið og þá sérstaklega meðal ungs fólks. Merkið er stofnað af Haraldi Davíð Björnssyni sem er fæddur árið 2003 og hefur byggt upp sinn eigin heim í kringum götutísku, grafíska hönnun og sterka vörumerkjaímynd. 

Haraldur Davíð Björnsson ólst að hluta upp í Stokkhólmi en flutti síðar til Íslands. Hann byrjaði ungur að hafa áhuga á grafískri hönnun og þróaði þann áhuga áfram á menntaskólaárunum í MH. Hugmyndin að fatamerkinu kviknaði þegar honum var bent á að prófa að setja grafíkina sína á hettupeysu.

Coppermine vakti einnig mikla athygli fyrr á þessu ári þegar rapparinn Swa Lee hélt tónleika hér á landi klæddur fötum frá merkinu. 

Timothée Chalamet er einn eftirsóttasti leikari Hollywood og hefur vakið athygli fyrir einstakan stíl, útgeislun og mikla hæfileika. Hann sló í gegn í kvikmyndinni Call Me by Your Name og hefur síðan leikið í stórmyndum á borð við Dune og Wonka. 

Húfan er nú uppseld á vefsíðu Coppermine en kostaði 6.990 kr.

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅