Hrafnhildur hjólar í Bændasamtökin og stjórnvöld – „Ráðast á þann sem kveikti ljósið“
Hrafnhildur Mjöll Geirsdóttir, dýraverndarsinni, kemur Einari Loga Péturssyni til varnar eftir innbrot hans hjá Stjörnugrís. Hún sakar formann Bændasamtakanna um afneitun og hvítþvott og stjórnvöld um aðgerðarleysi til varnar dýrum.
„Það er orðið þreytt og kunnuglegt stef í íslenskri umræðu að í hvert sinn sem hulunni er svipt af óboðlegri meðferð á dýrum rísa hagsmunasamtök upp á afturlappirnar. Ekki til að fordæma þjáninguna, heldur til að ráðast á þann sem kveikti ljósið,“ segir Hrafnhildur í aðsendri grein á Vísi.
Vísar hún þar með til innbrots Einars Loga Péturssonar hjá Stjörnugrís fyrr á þessu ári. En nýlega birti hann myndefni frá stíum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauða grísi og svín með blæðandi nuddsár.
Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna hefur brugðist við þessum fréttum og sagt að eini stóri glæpurinn sem sæist í myndbandinu vera innbrotið sjálft. Hin særðu og dauðu dýr væru frávik frá almennum rekstri.
Vitnisburður dýralæknis
„Viðbrögð Trausta Hjálmarssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, við myndefni úr stíum Stjörnugríss eru skólabókardæmi um þessa afneitun,“ segir Hrafnhildur. „Að mati formannsins er „stóri glæpurinn“ ekki sár, sýkt og vanrækt dýr í þröngum stíum á nöktum steingólfum, heldur það að einhver hafi brotist inn til að sýna almenningi sannleikann. Hann reynir enn fremur að telja þjóðinni trú um að það sem blasir við á skjánum sé aðeins einangrað „frávik“.“
Segir hún að þessi tilraun til hvítþvottar standist ekki skoðun. Um leið og hlustað sé á fólk sem þekkir innan frá hrynji þetta til grunna. Til dæmis til dýralæknisins Sifjar Traustadóttur sem sagði að myndefnið kæmi sér ekki á óvart og að hún hefði upplifað máttleysi í starfi gagnvart þessu.
„Sömu athugasemdirnar voru gerðar aftur og aftur, pínulítið var lagað á yfirborðinu til málamynda, og síðan hélt allt áfram í sama farinu. Tveimur áratugum síðar hefur ekkert breyst. Það sem Trausti kallar „frávik“ kallar reynslumikill dýralæknir tuttugu ára stöðnun og kerfislæga vanrækslu,“ segir Hrafnhildur.
Stóriðja sem veltir milljörðum
Segir hún að Stjörnugrís sé ekki „rómantískur fjölskyldubúskapur“ heldur stóriðja sem velti milljörðum króna. Hagsmunaaðilar beri gjarnan fyrir sig að tafir í skipulags- og seyrumálum hafi komið í veg fyrir að hægt sé að byggja ný og betri hús. Þess vegna sé greinin á undanþágum til ársins 2028.
Sjá einnig:
Einar Logi birtir myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjörnugrís – Forstjórinn segir hann „gerpi“
„En það er engin afsökun. Ef fyrirtæki hefur ekki húsnæði eða leyfi til að halda dýr í samræmi við lágmarkskröfur um velferð, þá á það einfaldlega að draga saman framleiðsluna þar til aðstaðan er klár,“ segir hún. „Dýr eiga ekki að þurfa að þjást árum saman vegna þess að skipulagsmál eigenda tefjast í kerfinu. Með því að stökkva fram og verja slíka starfsemi er formaður Bændasamtakanna að spyrða heiðarlegan, íslenskan landbúnað saman við verksmiðjubúskap sem þolir ekki dagsins ljós.“
Gasklefinn
Nefnir hún einnig að grimmdin nái ekki aðeins til stíunnar. Slátrunin sé hrein og klár pynding. En eins og komið hefur fram aflífar Stjörnugrís grísi með gasklefa.
„Þau eru rekin öskrandi af dauðans skelfingu niður í gasklefa þar sem hár styrkur koltvísýrings myndar sýru á slímhúð þeirra. Á meðan þau kafna hægt brennir gasið augu þeirra, nef, háls og lungu innan frá. Öskrin og örvæntingarfull barátta þeirra fyrir lífi sínu í klefanum eru óbærileg, en á pappírum kerfisins er þessi aðferð kölluð „mannúðleg slátrun“. Þetta er veruleikinn sem hagsmunaaðilar vilja ólmir fela fyrir neytendum,“ segir Hrafnhildur.
Þæfingataktík
Þá beinir hún einnig spjótum sínum að stjórnvöldum og Matvælastofnun. Sakar hún Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra um að nota „gamalkunna pólitíska þæfingataktík,“ með því að senda málið til MAST og bíða skýrslu áður en nokkuð verði aðhafst.
„Það þarf engan spámann til að sjá hvernig sú skýrsla mun líta út. Ráðherra er í raun að fela sömu stofnun og hefur sofið á verðinum í tuttugu ár, gefið út endalausar undanþágur og látið sér nægja fyrir fram boðaðar eftirlitsheimsóknir, að dæma í eigin sök. Útkoman er fyrirsjáanleg. MAST mun skila hvítþvotti þar sem því er haldið fram að allt sé samkvæmt reglum og undanþágum, málið verður látið niður falla í þögninni og þjáning dýranna heldur áfram á færibandi eins og ekkert hafi í skorist,“ segir hún. „Það er galið að á meðan dýraverndarsamtök hafa ekki einu sinni lögvarinn rétt til að kæra ákvarðanir MAST, þá geta stórfyrirtæki eins og Ísteka og Stjörnugrís keyrt áfram í skjóli skýrslna sem engu breyta.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗