Íslensk skrímsli tala nú rússnesku

Breiðholtið er orðið eyja, skoffín leynast í bakgörðum og nykur getur orðið á vegi fólks í næstu tjörn. Þannig er umhorfs í Ormhildarsögu, íslenskri teiknimyndaseríu eftir Þóreyju Mjallhvíti.

Ævintýraheimurinn hefur nú ratað langt út fyrir landsteinana, meðal annars til Rússlands, þar sem þættirnir hafa verið talsettir. Þórey segir í Dagmálum að hún hafi fyrir tilviljun rekist á rússneska umfjöllun um þættina.

Í umfjölluninni lýsti talsetningarteymið vinnunni við þættina. Þórey segir að sér hafi þótt sérstaklega vænt um hversu fallega var fjallað um íslensku teiknimyndaseríuna.

Í Ormhildarsögu hafa jöklar heimsins bráðnað og íslensk þjóðsagnakvikindi ganga laus. Fólk býr meðal annars á Breiðholtsey og Árbæjareyju og þarf að læra að lifa með þeim. Mynd/Ormhildur.com

Ormhildarsaga, sem nefnist Ormhildur the Brave á ensku, er 26 þátta teiknimyndasería byggð á samnefndri myndasögu Þóreyjar frá árinu 2016. Hún er bæði leikstjóri og handritshöfundur þáttanna en alls tók tíu ár að koma sögunni á skjáinn.

Þegar mbl.is ræddi við Þóreyju árið 2017 var Ormhildarsaga enn nýútkomin myndasaga. Þá sagðist hún meðal annars vilja hafa hetjurnar sínar ófullkomnar.

Framleiðsla teiknimyndaþáttanna var umfangsmikið verkefni. Íslenska fyrirtækið Compass Films framleiddi þá í samstarfi við íslensk og pólsk framleiðslufyrirtæki, en kanadíska fyrirtækið Epic Story Media sér um alþjóðlega dreifingu þeirra. Auk Rússlands hafa þættirnir meðal annars verið sýndir á RÚV og í Þýskalandi.

Ormhildarsaga hefur þó ekki aðeins ratað til áhorfenda erlendis. Þórey hefur einnig hlotið viðurkenningu fyrir verkið hér heima, en í vor fékk hún Vorvindaviðurkenningu Íslandsdeildar IBBY.

„Nei, nei, nenni ekki“

Í ævintýraheimi Ormhildar má finna ýmsar kynjaverur úr íslenskum þjóðsögum, meðal annars skoffín, nykra, næturtröll og finngálkn. Mynd/Ormhildur.com

Í Dagmálum segir Þórey nánar frá söguþræðinum, sem gerist í framtíð þar sem jöklar heimsins hafa bráðnað.

„Þetta er sem sagt heimsendarframtíð þar sem jöklar heimsins hafa bráðnað. Undan þeim skriðu öll íslensku þjóðsagnakvikindin sem við töldum að væru bara í þjóðsögunum,“ segir hún.

Fólk býr meðal annars á Breiðholtsey og Árbæjareyju og hefur þurft að læra að lifa með kynjaverunum, sem sumar hverjar geta verið stórhættulegar.

Þórey tekur dæmi af nykri sem reynir að drekkja fólki. Við honum sé þó einfalt ráð. Það dugi að segja „Nei, nei, nenni ekki“ og þá hætti hann að reyna að drekkja manni.

Aðalpersóna sögunnar, Ormhildur, starfar á kukl- og galdrarannsóknasetri ríkisins þar sem leitað er leiða til að takast á við þjóðsagnaverurnar.

Þar kemur í ljós að forn galdur hafi bundið kvikindin í ísnum. Ormhildur leggur því ásamt félögum sínum upp í ferðalag til að finna leið til að endurvekja galdurinn, endurheimta jöklana og loka verurnar inni á ný.

Á ferðalaginu kemur þó í ljós að ekki eru allar verurnar jafn hræðilegar og ætla mætti. Sumar reynast jafnvel fyndnar og skemmtilegar.

Þórey Mjallhvít, höfundur og leikstjóri Ormhildarsögu, segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart að rekast á rússneska umfjöllun um þættina, sem hafa verið talsettir á rússnesku. mbl.is/Kristófer

Hugsaði um framtíð barnanna

Þórey segir hugmyndina að sögunni meðal annars hafa mótast þegar hún eignaðist barn og fór að velta fyrir sér framtíð komandi kynslóða í ljósi loftslagsbreytinga.

Hún hafi hugsað um hvernig fólk geti lært að lifa með náttúrunni, jafnvel þótt hún geti verið hættuleg.

Sem dæmi nefnir Þórey tígrisdýr. Fólk þurfi að finna leiðir til að lifa í nágrenni þeirra án þess að drepa þau öll eða loka þau inni. Sama hugsun liggi að baki Ormhildarsögu. Í stað þess að reyna að færa allt aftur í fyrra horf þurfi fólk að laga sig að breyttum aðstæðum.

Í þáttunum koma fyrir fjölmargar kynjaverur úr íslenskum þjóðsögum, meðal annars næturtröll, finngálkn, naddar, sæskrímsli og ísbjarnakóngur.

Þórey leyfir sér þó einnig að taka skáldaleyfi. Hún nefnir sem dæmi rauðnautin úr íslenskum þjóðsögum, sem séu afar hættuleg, og segist hafa ákveðið að bæta við gránautum sem séu enn hættulegri.

Á vefsíðunni ormhildur.com má einnig lesa stuttar myndasögur um Ormhildi og vini hennar, bæði á íslensku og ensku.

Í Dagmálum segir Þórey einnig frá móðurmissinum sem mótaði hana og hvernig eigin reynsla hefur ratað inn í ævintýraheim Ormhildarsögu.

Hægt er að horfa á viðtalið við Þóreyju Mjallhvíti í heild sinni hér. Þættina Ormhildarsögu má sjá hér.

Þórey Mjallhvít ásamt ketti sínum á mynd frá árinu 2017. Þá hafði Ormhildarsaga nýlega komið út sem myndasaga en nú næstum tíu árum seinna er hún orðin 26 þátta sería. mbl.is/RAX

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅