Farinn frá Manchester United
JJ Gabriel, 16 ára gamall efnilegur leikmaður Manchester United, hefur ákveðið að yfirgefa félagið og ganga til liðs við Real Madrid.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en Gabriel hefur sjálfur staðfest að hann sé á förum frá United og kvatt félagið.
Gabriel hefur verið talinn einn af efnilegustu leikmönnum í unglingastarfi United en framtíð hans hefur verið til umræðu undanfarna mánuði. Ku hann vera ósáttur með hlutverk sitt.
Samkvæmt Romano hefur Gabriel ákveðið að halda til Real Madrid og er stefnt að því að ganga frá samningi á næstunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗