Eignaðist sitt fyrsta barn 42 ára

Lavigne heldur dóttur sinni þétt að sér á svarthvítri mynd sem hún deildi með aðdáendum. Skjáskot/Instagram

Söngkonan Avril Lavigne hefur eignast sitt fyrsta barn. Lavigne, sem er 42 ára, greindi frá fæðingunni á Instagram um helgina og birti fyrstu myndirnar af dóttur sinni.

Á einni myndinni halda foreldrarnir í litla hönd dóttur sinnar og á annarri hvílir hún við brjóst móður sinnar. Á þeirri síðustu má sjá þrjú pör af köflóttum Vans-skóm á hjólabretti, tvö í fullorðinsstærð og eitt agnarsmátt.

Lavigne tilkynnti um fæðingu dóttur sinnar með mynd af þremur pörum af köflóttum Vans-skóm á hjólabretti, tveimur stórum og einu agnarsmáu. Skjáskot/Instagram

Lavigne hefur ekki greint opinberlega frá því hver barnsfaðir hennar er. Þegar ástarlífið bar á góma í hlaðvarpinu Call Her Daddy árið 2024 vildi hún ekki svara því hvort hún væri í sambandi. Hún sagði þó að mestu máli skipti að finna einhvern sem maður ætti vel við og gæti treyst.

Fulltrúi Lavigne segir í samtali við People að söngkonan njóti nú samverunnar með fjölskyldunni og vinni jafnframt að nýrri plötu. Hún vilji þakka aðdáendum sínum fyrir hlýhuginn.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅