Björn fengið nóg og vill að Íslendingar hætti þessu strax - „Af hverju er þetta aldrei rætt?“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 18:30

Björn Þorláksson blaðamaður.

Víkingaklappið fræga er misvinsælt en Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður og rithöfundur, vill helst leggja því, sem og reyndar fleiri söngvum stuðningsmanna íslenska landsliðsins ef horft er til skrifa hans á Facebook.

Björn skrifaði um málið í kjölfar þess að Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik í gær og stýrði Víkingaklappinu, eins og hann hefur gert við mörg stór tilefni í gegnum tíðina, í síðasta sinn.

„Nú þegar víkingaklappið er vonandi úr sögunni vona ég að tónvís stemmningsmaður taki að sér í verktöku að troða ullarsokk upp í alla þá á Laugardalsvelli sem framvegis ætla sér að ýlfra Áfram Ís-laaand með skriði úr fís niður í dís! Lögreglumál. 

Sá sem ætlar sér að brúka heróp til sigurs endar ekki hvatninguna með því að láta stóran hóp af fólki renna sér á rassinum tvíund niður tónskalann. Lágmark að halda stöðu eða teygja tóninn upp. Af hverju er þetta aldrei rætt? En takk fyrir vaktina, Aron!“ skrifaði Björn.

Á hann þarna við þegar Tólfan, stuðningsmannasveit Íslands, kallar „Áfram Ísland“ úr annarri stúku Laugardalsvallar og stuðningsmenn hinum megin svara í sömu mynt. 

Flestir sem tjáðu sig undir færslu Björns voru honum sammála í þessu máli.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅